Kebab án magapínu?

Það ótrúlega hefur gerst. Ég smakkaði í gær Kebab sem olli ekki neinni vanlíðan og var auk þess mjög bragðgóður.

Hingað til hafa samskipti mín við kebab staði í Þýskalandi (já og á Íslandi) ekki verið eins og best verður á kosið. Verst fór ég þó út úr léttsteikta kjúklingakebabinu sem ég fékk mér í Berlín síðasta sumar. Ég saup seiðið af þeim mat í nokkuð margar vikur þar á eftir.

En allavega, eftir að hafa ráðfært við mig helstu kebab notendur hér á Mjaðarvöllum þá er einn kebab staður hérna aðeins neðar í hverfinu sem er að standa sig mjög vel.

Það sem hann hefur fram yfir flesta subbuviðbjóðskebabstaði er:

  • Brauðið er grillað í ofni. Flestir subbustaðir eru annað hvort með brauðið kalt eða setja það í örbylgjuna þannig að það verður sveitt og minnir meira á þvottapoka en brauð.
  • Kjötið er 100% kálfakjöt. Án þess að menn auglýsi það sérstaklega þá er ýmislegt sem endar á kebab teininum, allt frá hundakjöti niður í gólftuskur.
    Þeir allra grófustu eru svo bara með kjötfars búðing á teininum. Það er líklega einhver mesti viðbjóður sem hægt er að þræða upp á tein.
  • Út af ferskleika kjötsins kemst viðkomandi staður upp með að krydda kjötið mátulega í stað þess að maður fái mánaðarskammtinn af salti og MSG í einum kebab bita.
  • Á þessum stað býr eigandinn til nýjan tein á hverjum morgni (og svo annan eftir hádegið). Flestir aðrir eru með tein á stærð við fílsfót sem “endist” í marga daga og er því oft farinn að þrána þegar maður mætir og vill fá sinn kebab, kannski 5 dögum eftir að teinninn var hlaðinn
  • Mátulegt magn af grænmeti og lauk. Oft þurfa staðir að hafa mikið af lauk til þess að deyfa óþverrabragðið sem kemur af kjötinu þegar það er orðið gamalt.
  • Mátulegt magn af sósu. Þessi þarf ekki að fela óbragðið af kjötinu í sósu sem síðan endar oftast í fanginu á manni þökk sé óhóflega miklu magni

Það eina sem hægt er að setja út á þennan stað er að hann er ekki opinn þegar þörfin er hvað mest fyrir þennan mat. Það vill nefnilega brenna við að mann langi í kebab þegar maður er á heimleið eftir að hafa drukkið 1-2 bjóra seint á kvöldin.

8 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    október 10, 2006 @ 8:35 pm

    Ég myndi nú samt fá mér Obstler á eftir, til öryggis (og sótthreinsunar).

  2. Sunna Grimma said,

    október 11, 2006 @ 3:38 pm

    Svarið við vandamálinu er að fá sér einn til tvo bjóra snemma að morgni og mæta svo í hádegismatinn hjá þeim og fara svo heim.

  3. Einar said,

    október 12, 2006 @ 1:39 pm

    Er ekki rétt að þú upplýsir um heiti og staðsetningu þessa ágæta staðar, svo maður geti fengið úrvalskebab, ef maður er þarna á ferðinni.

  4. f.willy said,

    október 12, 2006 @ 8:10 pm

    Þessi lýsing magnar óneitanlega upp kebab-abstinensinn hjá mér, sem hefur legið í dvala síðan í Svíþjóðarferðinni en kemur núna tvíefldur til leiks.

  5. Brynjar said,

    október 15, 2006 @ 7:30 pm

    Staðurinn er á Türkenstrasse. Ég þarf hins vegar að fara aftur og skrifa niður nafnið og götunúmerið. Ég var svo heillaður þarna að ég gleymdi bæði stund og stað… næst tek ég með mér blað og blýant og tek niður helstu upplýsingar.

  6. ABO said,

    október 15, 2006 @ 9:25 pm

    Bíddu, ef þetta er ekki subbulegt kebab… þá er þetta ekki kebab.

    Svo áttu náttúrulega að fá þér 1-2 bjóra EFTIR kebabið til þess að drepa allt niður

  7. Soffía said,

    október 16, 2006 @ 11:16 pm

    Skemmtilegar lýsingar…. ótrúlegt en satt þá hef ég samt ekki misst kebab-matarlystina við að lesa þetta. Átti mér einmitt uppáhalds kebab-stað í Berlín, rétt hjá uppáhaldsskemmtistaðnum mínum… þarf vart að taka fram að neysla kebabsins fór ætíð fram undir morgun… gott ef við FÓ fengum okkur ekki kebab þarna… alla vega dró ég FÓ á skemmtistaðinn… Annars bjó ég í Innsbruck og þar var kebab-ið virkilega gott - og borið fram í semmel að austurrískum sið. Lýkur þá kebab endurminningum mínum að sinni! ;)

  8. Finnbogi said,

    október 18, 2006 @ 10:44 pm

    Jú, það passar, við borðuðum kebab árla morguns, örugglega í beinu framhaldi af Rússadiskói. Í minningunni var hann mjög góður, en sennilega má deila um áreiðanleika minnisins miðað við það sem á undan hafði gengið. Ég þurfti heldur ekki bjór í sótthreinsunarskyni, enda með magann fullan af Pitu eftir caipirinha-drykkjuna á Rússadiskóinu.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment