Sérfræðiþjónusta
Eitt sem er skemmtilegt hérna á Mjaðarvöllum er sú mikla sérfræðiþjónsta sem maður getur gengið í. Ef maður velur réttu búðirnar þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að það taki á móti manni 13 ára gamall sumarstarfsmaður sem þekkir ekki viðfangsefnið.
Á ská á móti þar sem við búum er sérfræðingur í prenthylkjafyllingum. Þar getur maður mætt með tóma blek- eða tónerhylkið sitt og fengið fyllingu. Þessi maður gerir semsagt ekkert annað en að fylla á tóm hylki. Ef þig vantar til dæmis prentara eða nýtt fullt blekhylki, þá fer maður í tölvubúð, þessi tekur bara við tómum hylkjum og fyllir.
Hér rétt fyrir ofan er búð sem selur bara egg. Þar er hægt að kaup ný ferk egg frá einhverjum bónda suður í sveit. Eins og góðum sérfræðingi sæmir fæst ekkert annað þarna. Viðkomandi er sérfræðingur í eggjum.
Í miðbænum er (eða allavega var, veit ekki alveg hvort hún er ennþá) búð sem selur tannbursta. Venjulegur leikmaður getur auðvitað fengið áhugamanntannbursta í kjörbúðinni, en þarna er hægt að fá tannbursta sem hentar þínu tannsetti. Auðvitað tekur sérfræðingur á móti þér og mátar bursta þar til hinn eini sanni finnst.
Ekki þarf að minnast á að hér eru út um allt sérfærðingar í Lederhosen. Þeir sérhæfa sig bæði í nýjum buxum og svo annarar- til þriðju kynslóðar buxum.
Hér er líka fjöldinn allur af litlum búðum sem selja bara grænmeti, bara ávexti, bara vín, bara kjöt og svo framvegis. Að fara í kjörbúð er því algjört neyðarúrræði þegar ekki finnst sérfræðingur í viðkomandi vöru. Til dæmis hef ég ekki ennþá fundið sérfræðing í klósettpappír. Ég er því ennþá að kaupa áhugamannapappír í kjörbúðinni í stað þess að fá sérvalinn pappír hjá sérfræðingi.
Dagbók ATÆ Blogg dagsins said,
október 18, 2006 @ 11:56 pm
[…] sem sérhæfa sig í einhverjum einum hlut. Atli Týr Ægisson skrifaði þetta klukkan 23:56 Flokkur: Bull || […]
Finnbogi said,
október 19, 2006 @ 10:03 am
Eini sérfræðingurinn sem ég man eftir hér heima er Bæjarins bestu.
Þeir selja að vísu bæði pulsur og kók - en ekkert annað.
Finnbogi said,
október 20, 2006 @ 11:23 am
Sumir sérfræðinganna virðast heldur ekki ná að anna eftirspurn, þannig man ég eftir annarri Tinten-Toner-Tankstelle aðeins neðar á Schellingstraße (nálægt leðurskraddaranum sem aldrei fannst).