Trúnaðarstörf fyrir Félagið
Í gær hélt Símon, Samtök Íslendinga í München og nágrenni, árlegan aðalfund félagsins. Fundurinn var haldinn á skemmtilegri knæpu sem heitir Scheidegger og er ekki langt frá miðdepli Münchenar (Schellingstrasse 105).
Stjórnin sá til þess að enginn yrði þyrstur, það voru því keyptar tunnur af Augustinerbjór sem ég og aðrir fundarmeðlimir gerðu góð skil.
Fyrir fundinn hafði ég lýst áhuga á því við stjórnina að sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið. Mér varð að ósk minni og núna hef ég titilinn Vefstjóri og heyri ég beint undir stjórn félagsins. Á næstu vikum mun ég því fara í endurbætur og breytingar á vefsetri félagsins.
Eftir fimmundasöng og nokkra Jägermeister herða lá leiðin svo í Kultfabrik. Þetta er risastórt svæði í austurbænum sem var eitt sinn kartöfluverksmiðja, en þegar hún var lög niður var svæðinu breytt í party zone. Þarna er fullt af klúbbum sem spila allt milli himins og jarðar, en auðvitað mest af þýskri eðaltónlist. Eftir óþarflega marga bjóra (og tequila sem var algjörlega ofaukið) lá leiðin á næstu subbulegu kebabbúllu og svo heim í koju.
Þökk sé því að ég fór ekki heim beint eftir aðafund eins og réttast hefði verið, hófst dagurinn í dag ekki fyrr en um kvöldmat. Á tímabili í dag var ég meira að segja hættur að drekka, en það tímabil er liðið hjá og ég lít björtum augum, fullur tilhlökkunnar, til næstu bjórdrykkju.
f.willy said,
október 22, 2006 @ 8:02 pm
Mér sýnist sem að þú hafir innbyrt blöndu af drykkjum sem jafnvel Stilli Vebba hefði mögulega hugsað sig tvisvar um áður en hann læti ofan í sig (en myndi að sjálfsögðu samt sem áður innbyrða þetta alltsaman). Vel af sér vikið.
Brynjar said,
október 22, 2006 @ 8:14 pm
Oftast er ég mjög rólegur og held mig bara við bjórinn. Ég veit ekki alveg af hverju, en á einhverjum tímapunkti fannst mér nauðsynlegt að fá mér nokkra Jäger snafsa. Eftir það er auðvitað ekki aftur snúið… Það þekkir hugarfóstur þitt, Stilli Vebba, af eigin reynslu.
Þröstur said,
október 23, 2006 @ 2:18 pm
Mér sýnast nú vera ærin verkefni framundan sem Vefstjóri. Fyrsta mál á dagskrá mætti vera að taka út þetta risastóra kort sem fokkar upp hægri dálknum á forsíðunni.
Brynjar said,
október 23, 2006 @ 2:37 pm
Eða þú skiptir yfir í einhvern betri browser en IE. Þetta er flott í Safari
Þröstur said,
október 24, 2006 @ 6:05 pm
Það eru alltaf mjöööööög sannfærandi vefsíður sem bara styðja minnstu browserana.
Best finnst mér ef efst stendur: “Þessi vefur lítur best út í Opera, útgáfu 7.02 á stýrikerfinu Windows 98″ eða eitthvað álíka.