Links gehen, rechts stehen

Eins og ég hef áður minnst á þá er óvíða jafn mikið aðhald sem samfélagið veitir manni og hér á Mjaðarvöllum.

Ein af mínum uppáhalds reglum er “Links gehen, rechts stehen”. Þessi regla stendur fyrir ofan flest alla opinbera rúllustiga í borginni (og þeir eru ansi margir út af neðanjarðarlestakerfinu).

Reglan vísar til þess að í rúllustigum stendur maður hægra megin ef maður ætlar EKKI að labba með. Ef þú ÆTLAR að labba með stiganum, þá ferðu vinstra megin.

Auðvitað gerist það að einhverjir brjóta þessa reglu. Þá kemur sér vel að tvær óskráðar lagagreinar ná yfir málið

Gagnvart þolanda:
Nú stendur einstaklingur hreyfingarlaus vinstra megin í rúllustiganum og teppir för þína. Þér er þá heimilt að veita viðkomandi þéttingsfast olbogaskot í síðu. Áður en olbogaskotið er gefið ber að segja hátt og snjallt “Entschuldigung” í hægra eyra geranda. Þegar þú kemst fram hjá er mikilvægt að hnussa hátt og snjallt framan í viðkomandi.

Gagnvart geranda
Nú stend ég hreyfingarlaus í tröppu vinstra megin án þess að gera mér grein fyrir því að það er alveg stranglega bannað. Ég á þá heimtingu á því að Samfélagslögreglan öskri í hægra eyrað á mér “Vorsicht” og gefi mér í kjölfarið kraftmikið olbogaskot í síðuna sem verður til þess að ég fell hægra megin í stigann og trufla ég þar með ekki umferð gangangdi fólks vinstra megin lengur. Ef ég næ andanum eftir olnbogaskotið þá er sjálfsögð kurteisi að kalla “Danke” á eftir viðkomandi Samfélagslögreglumanni.

Engin skömm er meiri en að láta góma sig vinstra megin í rúllustiga án þess að vera labbandi.

3 athugasemdir

  1. Finnbogi said,

    nóvember 10, 2006 @ 12:46 pm

    Það er samt grundvallaratriði að þessi Vorsicht! og Entschuldigung! komi ekki nema sekúndubroti áður en olnboginn gengur inn í síðuna á viðkomandi.

    Það er líka augljóst að hver sem verður fyrir svona aðhaldi verður samfélaginu óendanlega þakklátur í kjölfarið.

  2. Einar said,

    nóvember 20, 2006 @ 2:36 pm

    Jæja. Ertu enn með hausinn ofan í Gústatunnunni? Mikið asskolli hefur hún þá enst vel - þetta er kannski einhver galdratunna sem aldrei tæmist, eða hvað? Það fer nú að verða tímabært að setja hér inn nokkrar línur um lífið og tilveruna í landi Lúðvíks II.
    Kveðja góð.

  3. Brynjar said,

    nóvember 21, 2006 @ 8:37 am

    Í landi Lúðvíks II. hefur allt verið rólegt undanfarið. Ég skal hins vegar taka mig á og koma með fréttapistil fljótlega.

    Spennandi umræðuefni eins “Geta íslendingar búsettir í München drukkið bjór þangað til allt er búið, óháð því magni sem til er?” bíða þess að komast á blað.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun