Paulaner - Salvator

Bjór dagsins er að þessu sinni Paulaner Salvator, Starkbier, frá Paulaner brugghúsinu hér í borg.

Þrátt fyrir að nafnið virðist gefa til kynna að þarna sé á ferðinni sterkur bjór (í % talið) þá vísar nafnið til þess hversu matarmikill bjórinn er. Reyndar er þessi bjór langt yfir meðallagi í styrkleika. Flaskan sem ég er að drekka núna 7.9% sem er ansi miklu meira en frændbjórarnir hér í kring.

right_salvator.jpg

Salvator bruggið er dökkur bjór. Liturinn er svona karamellulitaður og jafnvel örlítið út í rautt. Strax við fyrsta sopa finnur maður að hér á ferðinni alvöru bjór. Hann er mjög bragðmikill og jafnvel örlítið rammur. Ég veit ekki alveg á hvað bragðið minnir, en þetta er eitthvert sambland af dökkri karmellu, sóti, vaxi og humlum. Áferðin er hins vegar mjög skemmtileg og mjúk, minnir helst á rjóma, rennur m.ö.o. ljúft niður.

Hér er svo auðvitað Starkbier fest sem er venjulega í mars og apríl. Ég hef ekki enn upplifað þessa hátíð, en hlakka mikið til þegar hún hefst. Sagan segir að þökk sé miklum styrkleika bjórsins verði allir þeir sem krús geta valdið svo svartir af öli að annað eins þekkist varla. Menn gleyma stað og stund og muna auðvitað ekkert daginn eftir.

Ég finn að styrkur bjórsins kemur mjög skemmtilega til leiks. Bara eftir hálfan lítra af þessum bjór er ég orðinn töluvert skemmtilegri en vanalega. Ég veit ekki hvernig ég verð á Starkbierfest þar sem maður drekkur svona bjór allt kvöldið. Ansi verð ég kátur…

Ein athugasemd »

  1. Pétur Bróðir said,

    janúar 18, 2007 @ 10:00 pm

    Ég vill bara vara þig við og vera við öllu búinn á Starkbierfest, það gerðist einatt hér á Nockherberg fyrrum að samkynhneigð manna og kvenna braust út á svona fjórðu krús. Ég á enn við þann vanda að stríða að geta ekki misst minnið við þessi tækifæri.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment