Tunnan komin í hús

20 lítrar af Augustiner bjór í trétunnu komnir í hús.

Augustiner

10 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    nóvember 7, 2006 @ 9:41 pm

    Ég sé að þú hefur líka náð hagstæðum samningum við Prof. Dr. Holzhammer.

  2. Valur said,

    nóvember 7, 2006 @ 9:43 pm

    Á að halda veislu?

  3. Þröstur said,

    nóvember 7, 2006 @ 10:49 pm

    Helv… djö… ósvífni að vera að flagga þessu svona framan í mann!!!

  4. Rúnar Óskarsson said,

    nóvember 8, 2006 @ 9:52 pm

    Djö, manni svelgist bara á. Vonandi ætlið þið Ásta að bjóða einhverjum með ykkur í veisluna?

  5. Brynjar said,

    nóvember 9, 2006 @ 9:37 am

    Það er aldrei að vita nema ég kalli í einn eða tvo bjórdrykkjumenn til að klára þetta með mér.

  6. Þröstur said,

    nóvember 9, 2006 @ 10:57 am

    Til hvers? Eins og orðtækið segir: “Best er heila tunnu einn að drekka!”

  7. f.willy said,

    nóvember 9, 2006 @ 10:52 pm

    Dugar þetta ekki frekar skammt? Þetta eru nú bara 20 krúsir (eða 40 dvergkrúsir).

  8. Brynjar said,

    nóvember 10, 2006 @ 8:13 am

    Jú, þetta er auðvitað minnsta sort af tunnu. Þetta var líka meira hugsað sem smakk.
    Vandamálið með tunnurnar er að það er frekar erfitt að flytja þær milli staða. Réttast hefði verið að fá 200 lítra tunnu, en þá hefði ég líklegast orðið að drekka hana hjá drykkjumanninum í drykkjarmarkaðnum.

  9. Finnbogi said,

    nóvember 10, 2006 @ 11:50 am

    Þetta er náttúrlega bara fjölskyldutunna, sambærileg við rauðvínsbeljuna sem vísitölufjölskyldan slátrar með sunnudagssteikinni.

  10. Rúnar Óskarsson said,

    nóvember 11, 2006 @ 10:08 pm

    Það má nú reyndar nefna að í Hollandi er þetta efni í um 200 bjóra (sem reyndar eru nokkurskonar „bjórlingar”). 100 manna partý og allir fá tvo bjóra!!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment