Müller´sches Volksbad
Skellti mér áðan í Sundhöll Mjaðurvellinga, Müller´sches Volksbad.
Þvílíkur lúxus er nú að geta hoppað sveittur og skítugur ofan í laugina án þess að þurfa að eyða tíma í að baða sig áður. Svo mikil áhersla er lögð á þetta að það er enga sápu að hafa á svæðinu. Ef þú vilt sápa þig, þá verður þú bara að koma með sápu að heiman.

Til þess að bæði þeir sem vilja synda og þeir sem vilja bara leika sér og busla geti notið laugarinnar er búið að skipta henni í þrjá hluta með köðlum. Þetta er það haganlega gert að það er eiginlega ekkert hægt að synda, maður flækist strax í köðlunum (lauginni er bæði skipt langsum og þversum).
Eftir góða sundferð er svo nauðsynlegt að kæla sig. Til þess er þessi fíni bjórgaður/veitingastaður beint fyrir utan dyrnar. Ég sá hvergi bjórsölu inn í sundhöllinni, en líklegast er ætlast til að maður komi með eigið nesti.
