Stóra Íslandsferðin

Undirritaður verður á Klakanum í byrjun desember í tvær vikur.
Heimboð sem samanstanda af matarveislu og bjór eru vel þegin.

Brynjar

11 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    nóvember 22, 2006 @ 3:46 pm

    Ég býð í jólasíld og jólabjór að kvöldi 2. desember.

  2. JB said,

    nóvember 22, 2006 @ 8:59 pm

    Annað! (Getur maður sagt þetta á íslensku? Kannsi ekki…)

    Ég býð í laugardagsmorgunkaffi. Þann 2. desember. Bjór verður líka til.

  3. Brynjar said,

    nóvember 22, 2006 @ 10:23 pm

    Finnbogi: Já takk.
    Jared: Já takk. Ég þyrfti reyndar að fá heimilisfangið hjá þér svo ég rati í morgunkaffið.

  4. f.willy said,

    nóvember 23, 2006 @ 1:37 pm

    Ég skal bjóða þér til heimsókn til mín í höfuðstað Norðurlands þar sem við getum samplað krúndjásn Akureyskrar bjórmenningar að vild (þ.e. Viking Gylltur™). Með því getum við snætt spægipylsu frá Kjarnafæði, til að þú fáir ekki würst-abstinens í útlegðinni.

  5. Þröstur said,

    nóvember 23, 2006 @ 3:33 pm

    Ég sé að þetta er orðin svona official bókunarsíða fyrir heimboð. Þannig að það er eins gott að taka þann 9. frá í mat og drykk. Einnig er þér velkomið að kíkja á holtið (Hörgsholtið, ekki Hótel Holt (Tja… eða þér er náttúrulega alveg velkomið að kíkja á Hótel Holt en ég blæði ekki!!!)) enítæm þegar þú ert svangur… já eða þyrstur. Ég garantera ekki að ég sé heima fyrr en eftir svona 16:30 á virkum dögum en það má skilja svaladyrnar eftir opnar ef þú vilt koma fyrr :)

  6. Brynjar said,

    nóvember 23, 2006 @ 4:03 pm

    Villi:
    Ég veit ekki hvort ég get þegið annars þetta frábæra boð til höfuðstaðs Norðurlands.
    Þó svo bæði bjórinn frá Víking og pylsan frá Kjarnafæði heilli mig, þá á ég bara ekki neinn Allrad Wagen sem er Hochlandtauglich (hér slæ ég um mig með þýskum ferðaskrifstofuorðum) sem getur komið mér norður. Ef út í það er farið þá á ég engan bíl. Ekki bara hefði ég gaman að því að hitta þig, þá hefði líka verið frábært að fara til læknis á Akureyri eftir að hafa snætt pylsuna frá Kjarnafæði.
    Hins vegar ef tilboðið hljómar uppá Sóttur og sendur þá gæti þetta vel gengið.

  7. Rúnar Óskarsson said,

    nóvember 24, 2006 @ 10:49 pm

    Héddna… er einhver séns á að þú kippir með Gústatunnu?? Maður er nú alltaf hálfþurr í kverkunum hérna í frostinu, þurrkinum og fásinninu.

  8. Finnbogi said,

    nóvember 25, 2006 @ 8:57 pm

    Góð hugmynd hjá Rúnari.
    Ef þú skaffar Gústatunnu skal ég redda krús til að drekka Gústann úr…

  9. Brynjar said,

    nóvember 25, 2006 @ 11:32 pm

    Gott að fá þetta boð með krúsirnar. Ég hafði einmitt áhyggjur af því að ef ég kæmi með tunnu að við gætum ekki drukkið bjórinn út af krúsarleysi. Nú loks er þetta orðinn raunhæfur möguleiki.

  10. JB said,

    nóvember 27, 2006 @ 9:43 pm

    Æ! Fyrirgerfðu! Ég var boðið upp í brúðkaup í Tékklandi á 2. desember á nákvæmlega sama kvöld sem ég skrifaði þetta. Þú getur enn komið í kaffi þann 2. des., en þú þarf að búa til það sjálf. :-(

  11. Brynjar said,

    nóvember 28, 2006 @ 9:25 pm

    JB: Þú setur bara lykilinn undir mottuna. Ég kem og hita mér kaffibolla!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment