Heitt í Ölpunum
Skv. Morgunblaðinu (sem fer auðvitað aldrei með rangt mál) þá hefur ekki verið heitara í Ölpunum í nokkur hundruð ár. Skíðaferðin sem ég hafði stefnt á um jólin gæti því endað sem gönguferð um Alpana í stuttbuxum (þ.e. Lederhosen) frekar en á skíðum.
Ætli eina ráðið til að komast á skíði sé ekki bara að taka “Akureyri dörtí wíkend” pakka hjá Villa. Villi: Munar þig nokkuð um að fá fjóra fullorðna til þín yfir jólin í gistingu og fullt fæði (auk þess sem þú þyrftir að sjá um skíðakennslu fyrir mig og bjóða upp á slökunarnudd eftir erfiðan dag í skíðabrekkunni)?
f.willy said,
desember 7, 2006 @ 12:35 pm
Þar sem ég er á við fjóra fullorðna sjálfur þá munar mig nú lítið um annað eins í fæði og húsnæði. Sé okkur fyrir mér þegar kvöldar klædda í köflótt prjónavesti að reykja jurtatóbak úr pípu með hárið sleikt til hliðar, drekkandi volgan eggjapúns fyrir framan opin arineld eftir erfiðan dag í fjallinu, ræðandi mikilvægustu heimsmálin af stakri kostgæfni, t.d. hvort Jón Baldvin hafi verið hleraður eða hvort einhver von leynist í framtíðinni hjá Kevin og Britney.
Þessi “opni arineldur” yrði reyndar að verða kveiktur útí horni stofunnar, og svo bara opnað út svo það safnist ekki fyrir of mikill reykur.
f.willy said,
desember 7, 2006 @ 5:11 pm
Sem sárabót verður að sjálfsögðu blöstuð eðalskífan “Weihnachten für Di und mi” með stuðsveitinni “Alpentrio Tirol” til að ná fram smá alpastemningu. Vona að þessi plata innihaldi ekkert nema jóðlaðar útgáfur af gömlum jólastandördum.
Brynjar said,
desember 7, 2006 @ 8:50 pm
Ég sé að “dörtí wíkend” á Akureyri ekki bara jafnast á við ferð í Alpana, heldur virðist þetta vera miklu betri pakki.
Þar ber auðvitað hæst tónlistin (“Weihnachten für Di und mi”) sem verður spiluð við opna arineldinn í stofunni heima hjá Villa. Verst er að líklegast verður þessi eldur bara kveiktur einu sinni, en ef vel tekst til þá fá Akureyringa litla brennu í hjarta bæjarins þegar fjallakofi Villa brennur til kaldra kola.
Villi, þú býrð örugglega í 101 er það ekki (þ.e. 601 eins og það heitir fyrir norðan)?
f.willy said,
desember 12, 2006 @ 10:54 pm
nei 601 er dreifbýlið… það sem mótsvarar 101 er 600 sem er “Akureyri sunnan Glerár”, reyndar er svo hægt að búa vel og illa innan 600 póstnúmersins. Ég bý í það sem mætti kalla 101 hlutanum innan 600 póstnúmersins.
Botninum er svo náð í 603 (sem er “Akureyri norðan Glerár”), þar búa bara barbarar í líkingu við Stebba og Magga. Þangað er ekki hægt að hætta sér án lögreglufylgdar eftir kl. 17:00 á virkum dögum (og 14:00 um helgar).