Hveitibjór á Íslandi.

Þá er ég loksins búinn að jafna mig eftir stóru Íslandsferðina sem var í byrjun desember.

Það sem helst stendur uppúr er að ég lærði að maður á ekki að sitja í 12 klukkustundir og drekka á þeim tíma 12-15 hveitibjóra. Þó svo það sé gaman meðan á því stendur, þá er líkaminn nokkra daga að jafna sig eftir svoleiðs rugl. Hveitibjór skyldi aðeins drekka í hófi. Ljósan lagerbjór er hins vegar ekki bara gott, heldur líka hollt, að drekka í óhófi.

Á laugardaginn hefst svo skíðaferðin til Austurríkis. Ég er búinn að finna til stuttbuxurnar, þannig að það er allt tilbúið. Snjórinn hlýtur svo að láta sjá sig í janúar eða febrúar.

4 athugasemdir »

  1. Þröstur said,

    desember 21, 2006 @ 1:05 pm

    Ha!!! Varstu eitthvað slappur eftir kvöldið? Skrýtið að ég heyrði ekkert í þér næstu daga á eftir. Sjálfur var ég svo sprækur að ég kunni ekki við að vera að núa þér því um nasir.

  2. Brynjar said,

    desember 21, 2006 @ 3:57 pm

    Ég væri að blekkja sjálfan mig og aðra ef ég myndi neita því að ég hafi verið létt timbraður eftir þetta. Það eru auðvitað ekki allir sem náðu innri hreinsun fyrir svefninn…

  3. Finnbogi said,

    desember 22, 2006 @ 11:19 am

    Já, sjálfur var ég líka ögn rykaður þennan sunnudag. Sem er skrýtið þar sem hveitibjórinn er fyrst og fremst svaladrykkur og næstum óáfengur.
    Var snakkið nokkuð komið fram yfir síðasta söludag, Þröstur?

  4. Brynjar said,

    desember 23, 2006 @ 9:13 am

    Helv. snakkið getur farið illa í mann. Þröstur þarf að passa að bjóða ekki upp á útrunnið snakk!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment