Á skíðum

Skíðaferðin okkar gengur vonum framar. Hér er heiðskýrt, logn og 2-3 stiga frost upp í brekkum.
Nægur snjór er í hlíðum fjallanna og ég er að sýna stórkostlega, áður óþekkta, takta á skíðunum. Ég skil ekki alveg hvað rúv.is er að væla um rauð jól í Ölpunum.

Hins vegar þarf að kenna þessum austurríkismönnum að brugga bjór. Bjórinn hérna er voðalegt piss. Það var algjör klúður að taka ekki með 2-3 bjórkassa frá München.

4 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    desember 25, 2006 @ 10:09 pm

    Tveir kassar af Gústa eru staðalviðlegubúnaður.

  2. Sunna og Maggi said,

    desember 26, 2006 @ 2:17 pm

    Eru austurríkismenn ekki snillingar í að brugga Stroh?
    Við mælum með að hvíla bjórinn og fá sér heitt kakó með 80% strohi útí eftir dag á skíðum.

  3. f.willy said,

    desember 26, 2006 @ 4:22 pm

    Gott að heyra að það gengur vel, því skítuga helgin á Akureyri hefði einmitt örugglega mestmegnis einkennst af skít og drullu því enginn er snjórinn… hefðum reyndar bara drukkið þeim mun meira Eierpunsch fyrir vikið.

  4. Brynjar said,

    desember 26, 2006 @ 4:37 pm

    Sunna og Maggi:
    Ég hef ekkert komist í Stroh-ið ennþá. Ég er svo rosalega úrvinda eftir daginn að ég rétt get borðað kvöldmat, drukkið nokkra bjóra og svo sofna ég eins og ungabarn. Kannski væri réttast að skipta kvöldmatnum út fyrir góðan kakóbolla. Það er hætt við því að maður sofni hratt eftir 80% stroh…

    Villi:
    Já, skítuga helgin hefði orðið full skítug hugsa ég. Hér er þó allvega snjór til að renna sér í. Ég þarf að rúlla síðar til þín í almennilega Dörtí víkend!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment