Nokkrar myndir frá Austurríki

Hér eru nokkrar myndir úr skíðaferðinni til Zell am See:

skidi1.jpg

Kominn upp á tind, aðeins nokkrar sekúndur þar til ég brunaði fetið niður brekkuna

skidi2.jpg

Það var ekki hægt að kvarta yfir veðrinu, heiðskýrt og sól alla daga

skidi3.jpg

Það kom sér vel að gamla 15 ára skíðaúlpan var svo gott sem ennþá í tísku

skidi4.jpg

Ásta tilbúin að bruna niður

skidi6.jpg

Auðvitað var svo bjórgarður efst á hæsta tindinum

skidi7.jpg

Þrátt fyrir stórfengleg tilþrif í brekkunum gekk ferðin stórslysalaust fyrir sig. Það er helst að maður sé lúinn í löppunum, enda tekur það vel á fyrir kyrrsetumann að skíða 6 daga í röð.

3 athugasemdir »

  1. f.willy said,

    desember 31, 2006 @ 4:36 pm

    Ég hefði ekkert á móti því að eignast svona úlpu… verst að Vöruhús KEA lokaði fyrir margt löngu, það hefði örugglega verið hægt að fá svona gæðagrip þar.

  2. Finnbogi said,

    janúar 7, 2007 @ 10:30 pm

    Er þetta ekki snjóflóðaúlpan með radarmerkinu í?

  3. Brynjar said,

    janúar 8, 2007 @ 7:55 am

    Jú, þetta er einmitt hún!
    Og áður en verður farið að grínast eitthvað með þessa úlpu mína og að hún sé aðeins eldri en gengur og gerist með úlpur, þá vek ég athygli á því að glænýja úlpan sem Ásta keypti er einmitt með nákvæmlega eins snjóflóðaradarmerki í.
    Mín úlpa hefur því verið langt á undan sinni samtíð!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment