Áramótin

Áramótin hér í München fóru vel fram. Við Ásta, ásamt foreldrum hennar, borðuðum á ítölskum veitingastað sem heitir Tambosi og stendur við Odeonsplatz.

Við borðuðm fimm rétta máltíð og drukkum auðvitað fullt af Augustiner bjór til að skola veislunni niður. Milli rétta fluttu nemendur úr einhverjum óperuskólanum hér í borg heimagerða óperu. Maturinn á Tambosi var rosalega góður og skemmtiatriðin fín. Þetta var því hin skemmtilegasta kvöldstund.

Á miðnætti fórum við út á Odeonsplatz með kampavínsflösku og fylgdumst með þegar heimamenn sprengdu hurðasprengjur og kveiktu á stjörnuljósum til að fagna nýju ári. Svo lítið var sprengt að þetta minnti á venjulegt mánudagskvöld á Íslandi… í febrúar.

aramot1.jpg

Um klukkan 01:00 á nýársnótt þagnaði svo borgin og allir fóru að sofa.

Eitt og annað mætti kenna þjóðverjum þegar kemur að því að halda áramót:

  • Rúðubrot. Órjúfanlegur hluti af íslenskum áramótum eru brotnar rúður.
  • Almennileg skemmdarverk. T.d. að sprengja upp strætóskýli eins og alltaf er gert í Hafnarfirði.
  • Sprengja Tívolíbombur. Þær má teipa á rúður og sprengja. Það er líka sígilt að láta þær springa í höndunum á sér.
  • Slagsmál. Það voru allir voðalega rólegir hérna.
  • Langar raðir inn á skemmtistaði. Hér panta menn fyrirfram inn á staðina og missa því af röðinni.
  • Brotnar flöskur út um allt. Þrátt fyrir að allir væru með kampavín úti á götu var fólk duglegt að nota ruslatunnurnar fyrir tómu flöskurnar og glösin.

Gleðilegt nýtt ár!

2 athugasemdir »

  1. Atli said,

    janúar 8, 2007 @ 1:59 am

    Ekki gleyma útsprungnum tívolíbombum og flugeldaprikum úti um allar götur…

  2. Þröstur said,

    janúar 8, 2007 @ 8:42 am

    Til hvers ættum við á klakanum að henda flöskum í ruslatunnur? Það verður hvort eð er búið að sprengja ruslatunnurnar í loft upp daginn eftir. Þessi amatörismi þarna í úti er náttúrulega til háborinnar skammar.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment