Loksins loksin
Morgunblaðið á netinu flytur okkur stórtíðindi í dag.
Egils Premium bjór verður fluttur til Þýskalands
Fyrir þá sem til þekkja eru þetta auðvitað stórtíðindi.
Hingað til höfum við íbúar á Mjaðarvöllum þurft að sætta okkur við bjór sem er bruggaður skv. Þýsku Hreinleikalögunum frá 1516 og aðeins seldur í glerflöskum. Þessi bjór hefur þann leiðinlega eiginleika að maður verður ekki þunnur og slappur daginn eftir, jafnvel þó svo 3-5 lítrar séu drukknir í einum rykk.
Núna getum við vonandi keypt okkur bjór, bruggaðan úr íslensku hráefni og borinn fram í funheitri áldós.
Fyrir utan að maður liggur veikur daginn eftir með hausverk, uppköst, niðurgang, bjórleiða og fleiri sjúkdóma eftir þennan bjór, þá er hægt að halda grettukeppni þegar bjórinn er borinn fram. Þetta ramma bragð fær fólk til að sýna ótrúlegustu grettur.
Íslenskt - Já Takk
Finnbogi said,
janúar 9, 2007 @ 1:05 pm
Þeir mættu þá alveg flytja Gústa til Íslands í staðinn.
Rúnar Óskarsson said,
janúar 9, 2007 @ 1:44 pm
E-111 hefur nú alltaf verið uppáhalds E-efnið mitt!!
Valur said,
janúar 9, 2007 @ 2:40 pm
Smakkaði Egils Premium um daginn. Hann er ekki nærri því eins slæmur og ég bjóst við, ekkert líkur Egils Gull.
Þröstur said,
janúar 10, 2007 @ 1:47 pm
Þetta eru náttúrulega ótrúleg gleðitíðindi fyrir ykkur bjórunnendur á Mjaðarvöllum. Núna loksins getið þið notið Gústans almennilega. Með því að pína einum premium ofan í sig fyrst og fá sér síðan Gústa beint á eftir þá verður gústinn margfalt betri þar sem samanburðurinn er orðinn svo góður.
Valur!!! Svona bull læturðu ekki út úr þér á svona virtri vefsíðu. Þetta er versti bjór í heimi, ef undan er skilinn Egils þorrabjórinn sem nóta bene byggir á Egils premium (ég reyndar tel læt bjórana ekki til bjóra, þeir eiga meira skylt við annan gulan vökva).
Egils þorrabjórinn er eini bjórinn sem ég hef nokkurn tíman þurft að hella niður á tíunda bjór, ég kom honum hreinlega ekki inn fyrir mínar varir þótt ég reyndi. Mér hefur tekist að innbyrða ýmsu á tíunda bjór, m.a. Faxe, Viking, Gull, Slots, Thor, rauðvín/bjór, þýsk pulsa upp af gólfinu á Hauptbahnhof og svo mætti lengi telja en Egils þorrabjórnn toppaði það allt.
Finnbogi said,
janúar 11, 2007 @ 12:02 am
E-111 er raunar ekki viðurkennt litarefni, en þeim mun skemmtilegra form hjá Tryggingastofnun. Hvernig það fer í bjór veit ég ekki.
Hins vegar varð frægt þegar skyrbjúgur kom upp í dönsku Tuborg verksmiðjunum eftir að þeir hættu að nota E-300 (askorbínsýru, C-vítamín) til að lækka sýrustig vatnsins fyrir meskingu. Í staðinn nota þeir E-270 (mjólkursýru) í dag, alveg eins og Egill félagi.
Hvaða E-efni eru í Gústa?
Brynjar said,
janúar 11, 2007 @ 8:08 am
Gústi frændi sér heiður sinn og sóma í því að nota ekkert nema vatn, malt og humla í sína framleiðu. Gallinn er auðvitað sá að þá geymist bjórinn ekki í 8-12 ár eins og sá íslenski.
Rúnar Óskarsson said,
janúar 11, 2007 @ 10:30 pm
Já það er rétt, ég er að rugla þessu við E-222, er það ekki notað líka? Annars er fátt betra en volgur Víking úr dós, með sykri, maís og slatta af E-i. Ummmm….
Pétur said,
janúar 17, 2007 @ 2:26 pm
Er ekki málið að senda skeyti á Hörð Harðarsson ( hoddi@egils.is ) yfirmann markaðsmála hjá Agli og vara hann við. Þetta gæti annars orðið flopp aldarinnar. Það vantar ekki bjór í Þýskaland, það vantar miklu frekar Appelsín.
P.Ó.
Þröstur said,
janúar 18, 2007 @ 1:34 pm
Já, þetta er svolítið svona eins og ætla sér að græða á því að flytja kaffi til Brasilíu eða ís til Grænlands.
Pétur Bróðir said,
janúar 18, 2007 @ 10:10 pm
Ja sveiattan þessu íslenzka bjórsulli, heyrði á tal manna á bar einum í Reykjavík að Viking væri einn besti lagerbjór í heimi, þessir sömu menn halda örugglega að Bragakaffi sé best í heimi líka. Heimskir heimaaldir hundar. Gustl Geilmacher ber höfuð og herðar yfir alla heimsins bjóra hvað bragð, fyllingu, eftirbragð, saðsemi, hausverkja og prumpleysi varðar. Svo er þessi dósabjórsómenning íslendinga með eindæmum ömurleg. Ég þekki mann sem hefur getað prumpað upphafsstefið úr Star Wars, bæði háa og lága tóna eftir 8 stk Egils Gull í dós og höfuðverkurinn var gríðarlegur (að hans sögn).