Zillertal

Um síðustu helgi var skíðaferð SÍMONAR. Stefnan var tekin á Kaltenbach í Austurríki á svæði sem kallast Hochzillertal.
Auðvitað var frábært veður allan tímann eins og alltaf í útlöndum

zilli1.jpg

Fögur er hlíðin.

ziller2.jpg

Þeir þá fáu sem enn smakka áfengi í Félaginu gátu auðvitað fengið sér lítinn bjór milli skíðaferða (á þessari mynd sést einmitt svo vel hvað skíðaúlpan mín er mikil tískuflík):

zilli3.jpg

Eftir góðan dag í brekkunni lá leiðin svo auðvitað í létt eftirskíðapartý.

3 athugasemdir »

  1. Þröstur said,

    janúar 22, 2007 @ 11:02 am

    Ég er svolítið farinn að sakna bjórs dagsins. Ertu nokkuð hættur að drekka? Ég sé nefnilega engan bjór á borðinu hjá þér þarna á myndinni!!!

  2. Brynjar said,

    janúar 22, 2007 @ 11:13 am

    Nei, ekki er ég nú hættur að drekka. Ég hef hins vegar verið svo tryggur Gústa frænda undanfarið þannig að ég hef lítið smakkað af nýjum tegundum.
    Ég skal hins vegar taka mig á, þetta er ótækt.

  3. Þröstur said,

    janúar 22, 2007 @ 11:59 am

    Það er ekkert að því að hafa Gústa frænda bjór dagsins hvern einasta dag. Ég get alveg lesið um það aftur og aftur. Væri samt ekki eðlilegra að kalla þetta bjór vikunnar eða kannski frekar bjór mánaðarins miðað við tíðni færslanna???

    Annars vil ég bara benda á að það eru komnir loka dómar um fyrsta eruovisionkvölidð inn á throstur.askja.org. Þarna er bæði fjallað um það íslenska og svo aðeins um það norska. Bara svona fyrir áhugasama en þú hefur náttúrulega engan áhuga á eurovision eins og sannur Þjóðverji.

    Hvernig er það annars, verðið þið ekkert vör við HM í handbolta þarna suður frá? Íslenska liðið er alveg að fara á kostum þarna!!!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment