Andechser - Bergbock Hell

Bjór dagsins, eftir langt hlé, er að þessu sinni Andechser - Bergbock Hell sem kemur frá Andechs klaustrinu sem er hér fyrir sunnan München.

pic_bergbock_hell.jpg

Bjór hefur verið bruggaður í Andechs klaustrinu frá því 1455. Það er því komin nokkur bruggreynsla þar á bæ eins og víðar hjá brugghúsum hér í Bæjaralandi.

Árlega eru bruggaðir í kringum 9 milljón lítrar af bjór í klaustrinu og af þeim eru um það bil 10% bornir fram á bjórknæpunni á staðnum. Brugghúsið leggur áherslu á góð tæki til framleiðslunnar auk þess sem bjórinn fær þann tíma sem hann þarf til að gerjast eðlilega.

Bergbock Hell er eins og nafnið getur til kynna ljós og sterkur bjór, 6.9%. Hann er mjög bragðmildur (milt humlabragð) og rennur ljúft, og og ekki síst hratt, niður. Þrátt fyrir að vera þetta sterkur er alls ekkert áfengisbragð af honum eða neitt annað (ó)bragð sem stundum vill einkenna sterkari bjóra. Bjórinn er frekar goslítill, en það passar mjög vel við bjór af þessum styrkleika.
Eftirbragðið er einnig mjög gott. Þó kemur smá rammt bragð upp í munninn í lokin, en það skemmir alls ekki fyrir heldur gefur bjórnum skemmtilegan karakter.
Bjórinn er nokkuð matarmikill og hentar því líklegast ekki í magn og/eða kappdrykkju. Hann er því kjörinn fyrir “Einn bjór fyrir svefninn” aðstæður (enda sér styrkurinn í bjórnum til þess að maður sofnar eins og ungabarn).

Síðasta sumar fór ég, ásamt Ástu og Finnboga, í hjólaferð í Klaustrið. Það vita þeir sem þekkja að hvergi er betra að drekka bjór en þar sem hann er bruggaður. Reyndar kom mér það í opna skjöldu að bjórinn var borinn fram í dvergkrúsum í klaustrinu.

Á heildina litið er þetta hinn besti bjór. Ekki góður til magndrykkju, en virkilega góður til þess að smakka á á góðri stundu.

Vart þarf að minnast á það að þessi bjór er bruggaður samkvæmt Þýsku Hreinleikalögunum. Það er því ekki hægt að búast við því að liggja veikur í koju daginn eftir neyslu þessa bjórs. Fyrir þann leik mæli ég hins vegar eindregið með Egils Premium, því íslenska rusli.

3 athugasemdir »

  1. Þröstur said,

    janúar 27, 2007 @ 12:53 pm

    Hljómar vel, kannski maður mæti í einn kaldann í kvöld og horfi á Eurovision hjá þér :)

  2. Rúnar Óskarsson said,

    janúar 27, 2007 @ 5:17 pm

    Djöfull verður maður alltaf þyrstur af því að lesa heimasíðuna hjá þér Brynjar!! Það vill til að ég fer að renna í hlað hjá þér fljótlega til að svala þorstanum.

  3. Brynjar said,

    janúar 28, 2007 @ 4:29 pm

    Þröstur, það er nú alveg til skammar hvað þú kíkir sjaldan til mín. Ég á alltaf til nægar birgðir af Augustiner bjór! Ertu kannski hættur að drekka? Ég get líka boðið þér fría gistingu!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment