Tegernseer Hell

Bjór dagsins er í þetta sinn Tegernseer Hell aus der Herzoglich Bayerischen Brauhaus Tegernesee KG. Brugghús þetta er staðsett um það bil 50 km. suður af München við vatnið Tegernsee.

tegernseer-hell.jpg

Frá því um það bil 1050 hefur verið fiktað við bjórgerð í þessu Brugghúsi, en sagan nær þó lengra aftur, eða til ársins 746. Eins og víðar voru þarna munkar á ferð sem brugguðu til að svala sínum sárasta þorsta.

Bjórinn sem ég smakka frá þeim í þetta sinn er Tegernseer Hell. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta ljós lagerbjór. Bjórinn er 4.8% að styrkleika og auðvitað bruggaður samkvæmt þýsku hreinleikalögunum. Einnig er bjórinn seldur í eins flöskum og Augustiner frændi og var það í raun það sem olli því að ég keypti þennan bjór í kjörbúðinni áðan.
Um leið og bjórnum er hellt í glasið kemur í ljós að þarna er ekkert rusl á ferð. Ég næ að sturta bjórnum í glasið í einum rykk án þess að froðan flæði út um alla íbúð .
Bjórinn er frekar sætur og nokkuð mikið humlabragð miðað við helles bjór. Jafnvel að hann sé örlítið of rammur fyrir minn smekk, en þó ekki. Hann skilur hins vegar eftir sig ljúft eftirbragð sem aftur hvetur til næsta sopa. Þetta er keðjuverkun sem maður vill gjarnan að bjór viðhaldi. Miðað við hvað bjórinn er ljós í glasinu, þá kemur mér á óvart hvað hann er bragðmikill.

Ég hugsa að þetta sé bjór sem maður gæti hæglega drukkið nokkra lítra af vandræðalaust. Hann er frekar léttur og rennur ljúft niður. Ég held að það samt forgangsmál hjá mér að komast í brugghúsið og smakka bjórinn í sínu náttúrulega umhverfi. Þá fyrst er hægt að dæma hann almennilega.

2 athugasemdir »

  1. Þröstur said,

    febrúar 27, 2007 @ 10:18 am

    Djö… eru menn í góðu formi. Miðað við ástandið á þér á laugardaginn hefði ég gert ráð fyrir alla veganna 6 daga bjórleiða, en nei nei, tveimur dögum síðar eru menn strax farnir að væta kverkarnar. Ég býð ekki í þig núna næstu hlegi :)

  2. Brynjar said,

    febrúar 27, 2007 @ 11:11 am

    Dagsformið er ansi gott. Ég vona að þú eigir nægan bjór þegar ég mæti á laugardaginn!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment