17. júní hátíðarhöldin
17. júní hátíðarhöld Íslendingafélagsins í München voru haldin á bökkum Isar þann 18 júní. Vegna óhagstæðrar veðurspár þann 17. var ákveðið að fresta þessu um einn dag. Veðrið var því all þokkalegt, 30 stiga hiti, sól og logn eins og sést á þessari mynd.
Við vorum líka sérstaklega heppin með stað, því í aðeins 20 metra fjarlægð var “ðe öglí neiked gæ” að sóla sig (bæði að framan og aftan).
Fyrir utan glæsilegt grill sem formaður og ritari félgasins stóðu að, þá má segja að hápunkturinn hafi verið þessi forláti bjór dunkur.
Þessi tunna var með innbyggðu kælikerfi, það þurfti bara að toga í einn spotta og eftir 30 mín var kominn ískaldur bjór. Kuldinn í tunnunni entist allavega kútinn, því síðustu droparnir úr tunnunni voru ekki síður kaldir en þeir fyrstu. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið kraftaverki líkast, þarna stóð maður löðursveittur í brennheitri sól, en gat allan tímann svalað þorstanum með ísköldum bjór. Þetta magnaða kælikerfi kalla þjóðverjarnir “Klick und Kühl” . Ég veit ekkert hvernig það virkar, en tunnan sjóðhitnaði að utan en var greinilega ísköld að innan. Hugsanlega getur Efnarfræðingurinn svarað því hvernig þetta gerist allt saman bak við tjöldin?
Á þennan 50 kg. dunk þyrfti ekki annað en að strengja tvö bönd svo hægt sé að setja hann á bakið og þá er komin græja sem mætti örugglega selja fyrir íslenskar útihátíðir (í stað bjórkrana eins og þessi tunna var með yrði þá bara slanga beint upp í þann sem ætti tunnuna).
Finnbogi said,
júní 23, 2006 @ 11:46 am
Mér finnst sennilegt að sé lofttæmi á milli ytra og innra borðs tunnunnar (eins og í termosbrúsum) og þegar þú togar í spottann seturðu af stað einhvers konar innvermið efnahvarf (svona svipað og gerist í kælipokum fyrir íþróttamenn) sem dregur í sig orkuna úr bjórnum.
Brynjar said,
júní 23, 2006 @ 12:31 pm
Einhvernveginn tekst þeim að flytja hitann úr bjórnum í ytra byrði tunnunnar, því hún var alveg brennheit. Innvermið efnahvarf hljómar allavega vel sem skýring.
Ef tunnan sjálf kostaðist ekki 70 EUR væri gaman að eignast eina og saga í sundur til að skoða þetta almennilega.
Finnbogi said,
júní 23, 2006 @ 1:20 pm
Ég fann nákvæmari upplýsingar um þetta á heimasíðu Jever:
Ein physikalischer Prozess macht es möglich. Durch Umlegen des Hebels öffnet sich ein Ventil, durch das Wasserdampf in den Zwischenraum des Fasses gelangt. Dort wird er von dem natürlichen Mineral Zeolith aufgenommen. Es kommt zu einer Reaktion, bei der das Wasser zu Eis gefriert und das Jever Pilsener an der Innenwand kühlt. Die dabei entstehende Wärme wird nach außen abgegeben.
Das Fass kühlt sich so selbst innerhalb von ca. 30 Minuten auf die optimale Trinktemperatur ab - und hält diese bis zu 12 Stunden lang. So kann man überall sein kühles Jever genießen.