Í sól og sumaryl

Mikið er nú ljúft að geta setið úti á svölum í 20 stiga hita með bjór í byrjun apríl.

Sumarið er greinilega komið til að vera hér í Bæjaralandi. Öruggasta merkið er að fólk (þ.e. eldri karlar) er farið að hópast í almenningsgarðana hérna til þess að geta legið þar nakið.

6 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    apríl 12, 2007 @ 1:09 pm

    Bíddu bara, sumarið kemur hingað 19. apríl, eins og alþjóð veit.
    Þá verður sko hægt að liggja nakinn í Hellisgerði.

  2. f.willy said,

    apríl 13, 2007 @ 11:55 am

    Engar myndir? Þ.e. af nöktu körlunum.

  3. Brynjar said,

    apríl 13, 2007 @ 12:00 pm

    Myndir koma vonandi á næstu dögum. Ég er að herða mig upp í að fara og mynda ósköpin.

  4. Sunna Grimma said,

    apríl 19, 2007 @ 10:36 am

    Og ertu svo bara búinn að liggja nakinn að sóla þig í Hellisgerði síðan og munt aldrei meir sjást á internetinu?

  5. Brynjar said,

    apríl 19, 2007 @ 11:11 am

    Nei heyrðu, ekki var það svo gott. Ég hef þurft að láta mér almenningsgarða hér í Muc, en þar þykir vissulega eðlilegt að liggja nakinn.

    Annars lofa ég meiri virkni hérna á næstu dögum/vikum/mánuðum/árum. T.d. í kvöld er von á spennandi umfjöllun í kaflanum \”Bjór dagsins\” auk þess sem ég er að hugsa um nýjan lið sem myndi heita \”Bjórgarður vikunnar\”. Þessi liður verður kynntur á allra næstu dögum.

  6. Þröstur said,

    apríl 19, 2007 @ 11:31 am

    Jæja, batnandi mönnum er best að lifa. :) Þessi doði hérna á síðunni undanfarnar vikur og mánuði er til háborinnnar skammar. Það mætti halda að þú værir að drepast úr leiðindum.

    Annars vil ég bara óska þér gleðilegs sumar. Hér á klakanum er komin sól og blíða og steikjandi hiti. Í gær var til að mynda nokkurra þúsund gráðu hiti í miðborg Reykjavíkur. Í morgun var svo búið að kólna örlítið og var u.þ.b…. hóst hóst… -2 stiga hiti á svölunum hér heima. Það gerist ekki betra.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment