Bayern München - Hamborg SV

Á laugardaginn fór ég, ásamt tengdapabba og 68.998 öðrum, á Völlinn og horfði á þegar mínir menn tóku á móti Hamborg SV.

kahn1.jpg

Það er skemmst frá því að segja að mínir menn stóðu undir væntingum og léku eins og þeir væri að sjá bolta í fyrsta sinn. Þá sjaldan að þeim datt í hug að sparka honum í átt að markinu, þá fór hann langt framhjá eða beint í markvörðinn.

Ég var feginn að vera staddur í efstu stúku þegar fauk í markvörðu bayern, Oliver Kahn.

kahn2.jpg

Hann hljóp út á miðjan völl og gelti og urraði eins og hundur á sína menn. Ekki þarf að taka fram að hann sjálfur sýndi stórleik jafnvel þó svo hann hafi ekki alltaf náð að verja.

Þrátt fyrir þennan ósigur bayern (1-2) þá er óhætt að segja að þeira eiga flottan heimavöll. Þar er hægt að fá bæði bjór og bratwurst, þannig að nú þurfa þeir bara að læra að sparka bolta og þá gæti dæmið gengið upp.

5 athugasemdir »

  1. Þröstur said,

    maí 1, 2007 @ 12:56 pm

    Er bara verið að halda fram hjá manni??? Hummm….

  2. Brynjar said,

    maí 1, 2007 @ 1:04 pm

    Ég skimaði eftir þér, þú varst bara hvergi nálægur þegar átti að fara á leikinn!
    Það vill til að þú misstir ekki af neinum stórleik í þetta skiptið.

  3. Þröstur said,

    maí 10, 2007 @ 9:57 am

    Assgoti eru menn orðnir slappir í blogginu. Það kemur ekki færsla nema í besta falli á tveggja viknafresti. Þú ferð nú fljótlega með þessu áframhaldi að detta út úr bloggrúntinum á morgnana.

  4. Brynjar said,

    maí 10, 2007 @ 10:27 am

    Úff, ég skammast mín. Ég er bara búinn að vera með gest, og það er búið að fara svo mikill tími í drykkju, óperuferðir, heimsókn á veitingastaði og annað, að ég hef bara ekki haft orku í að skrifa eitt né neitt.

  5. Þröstur said,

    maí 11, 2007 @ 12:45 am

    Það eru akkúrat slíkir hlutir sem maður vill sjá bloggað um þannig að þetta er náttúrulega versta afsökun sem ég hef heyrt :D

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment