Heimsókn
Vikuna 3. til 10. maí kíkti Finnbogi efnafræðingur í heimsókn.
Helstu afrek voru eftirfarandi:
- Bjór drukkinn á Vorhátíðinni með SÍMON-i
- Sáum óperuna Der Rosenkavalier
- Sáum óperuna Der Fliegende Holländer
- Fórum og sáum þýskt handverk í túbuverksmiðju suður af borginni
- Bjór og Svínahaxi í Augustiner Bierhalle
- Skemmtiferð í IKEA
- Zwei mal essen hjá Martino (ítalaskur veitinga sérfræðingur, er c.a. 2 tíma að elda ofan í mann)
- Fengum espresso hert með Sambuca hjá sama ítala
- Þýskur morgunmatur á Orlando á sunnudagsmorgninum (hveitibjór, hvítpylsur, beikon og annað létt meðlæti)
- Með þessu kíktum við svo ofan í nokkrar bjórkrúsir svo engin væri þyrstur
Hér eru svo nokkrar myndir af Vorhátíðinni.
Til að halda uppi stemmningunni var stókostlega lélegt band, sem auðvitað stóð fyrir sínu.
Bandið náði ákveðnum hápunkti þegar þeir fluttu þýska leðurtónlist í viðeigandi fatnaði
Sekúndubrot áður en Dabbi krafsaði illa í Finnboga
Fín skemmtun!
Uppfært 17.05.2007
Hér er tengill á bandið sem var að spila http://www.eslarner-showband.de/
Finnbogi said,
maí 16, 2007 @ 9:19 pm
Mér finnst nú Obstlerinn hjá Gústa verða að teljast til hápunktanna. Fjári var hann góður.
Takk fyrir mig, annars.
Finnbogi said,
maí 16, 2007 @ 9:20 pm
Áttu ekki hljóðupptöku af bandinu á Frühlingsfest?
Myndin segir ekki hálfa söguna.
Brynjar said,
maí 17, 2007 @ 12:03 am
Hljóðið á ég bara í farsímanum…kannski ég geti sogað það út með blátönn á morgun ef ég er hress.