Weihenstephaner - Hefe Weissbier

Bjór dagsins kemur að þessu sinni frá Weihenstephan, elsta brugghúsi í heimi sem er ennþá starfandi. Brugghúsið er staðsett í Freising sem er smábær rétt fyrir utan München.

Sögu Weihenstephan má rekja aftur til 1040. Frá því ári fengu þyrstir munkar úr reglu Benedikts að brugga bjór til eigin neyslu og einnig til að selja. Síðan þá hefur Weihenstephan bruggað og selt bjór, enda engin ástæða til að breyta til ef viðskiptin ganga vel. Brugghúsið sjálft er ennþá á sama stað og í upphafi, á Nährberg hæðinni í Freising.
Frá Weihenstephan koma líka ýmsar aðrar landbúnaðarafurðir (mjólk, rjómi og ostar).

Bjór dagsins er Weihenstephaner - Hefe Wessbier. Þetta er klassískur hveitbjór, 5.4% styrkleikar, bruggaður skv. Þýsku Hreinleikalögunum frá því árið 1516

hefe.jpg

Froðan er nokkuð falleg þegar búið er að hella í glasið. Það er alltaf ákveðin öryggistilfinning sem kemur þegar maður sér þétta og góða bjórfroðu. Liturinn á bjórnum er einnig fallegur. Hér því strax kominn góður grunnur til að byggja á.

Áður en fyrsti sopinn er tekinn finnst mjúk ávaxtalykt með nokkuð ríkum bananakeimi. Við fyrsta sopa finnst ekki eins mikið bananabragð og ég átti von á. Hins vegar tekur á móti nokkuð ríkt humlabragð sem jaðrar við að vera rammt, en er það ekki. Djúpt í bragðinu má svona finna vott af einhverjum kryddum sem maður hefði frekar átt von á að hitta í jólasmákökum en bjór. Eftirbragðið er nokkuð milt með rjómakeim, en fer örlítið út í rammt í lokin.

Á heildina litið er þetta fyrirtaks hveitbjór. Sómar sér eflaust mjög vel með hvítpyslum á sunnudagsmorgni eða sem svaldrykkur fyrir fólk sem smakkar ekki áfengi.

2 athugasemdir »

  1. f.willy said,

    maí 18, 2007 @ 12:53 pm

    2 bjórdagar í röð? Erum við að tala um að þessi dagskrárliður sé hér með farinn að standa undir nafni? Núna er reyndar að koma helgi þannig að magn bjórsins sem er innbyrtur gæti bráðlega farið að hafa hamlandi áhrif á pistlaskrifin.

  2. Brynjar said,

    maí 18, 2007 @ 1:49 pm

    Já, vonandi fer þessi liður að standa undir nafni. En það er auðvitað margt sem getur hamlað skriftum. Bjór dagsins verður líka eiginlega að vera fyrsti bjór dagsins. Það brenglast nefnilega stundum bragðskynið ef maður er búinn með 2-3 lítra af bjór.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment