Schneider Weisse - Aventinus
Bjór dagsins kemur eins og síðasti bjór dagsins frá Schneider fjölskyldunni.
Tegundin í dag er Aventinus. Þetta er bjórtegund sem ég, þar til fyrir skömmu, hafði ekki hugmynd um að væri brugguð - Stark-Weissbier. Tegundin sameinar þarna tvær mjög skemmtilegar bjórtegundir, stark bjórinn og hveitibjórinn, en báðar tegundirnar þykja mér mjög góðar.
Bjórinn er 8.2% að styrkleika, all dökkur (dökk rauður og gruggugur) að sjá og auðvitað bruggaður eftir þýsku hreinlalögunum frá 1516. Fyrir áhugasama lesendur um matarmikla bjóra þá er hann með Stammwürze upp á 18,5% sem þykir mjög gott.
Þegar bjórnum er hellt í glasið kemur fyrsta gæðamerki Scheinder feðga í ljós. Froðan er mjög þétt og freyðir mátulega í upphafi, þ.e. 1.26 cm upp fyrir brún glasins. Froðan er það þykk að maður sér strax að hún er komin til að vera.
Lyktin af bjórnum minnir nokkuð á venjulegan hveitibjór, en þó er ögn meiri rjómakaramellu ilmur sem skín í gegn heldur en af venjulegum hveitibjór. Ef vel er þefað má finna létta áfengislykt stíga til himins.
Bragðinu verður vart lýst með orðum. Hér er á ferðin hin fullkomna blanda af hveitibjór og starkbjór. Frá hveitbjórnum kemur mjúk fínkennd gosfroða sem gefur bjórnum þykka og dúnmjúka áferð. Frá starkbjórnum kemur svo styrkurinn og ansi flókið bragð sem erfitt er að lýsa. Þetta er einhver blanda af áfengi, karamellu, banana, perum, humlum, sóti, fleski, sykri, óþekktum kryddjurtum og einhverju sem ég veit ekki hvort hefur nafn. Ofan á þetta er bjórinn nokkuð sætur sem gefur honum góða sunnudagsáferð. Kannski það sem kemst næst þessum bjór væri að setja gos í Gammel Dansk snafs og bera fram í bjórglasi.
Aventinus hefur nokkuð ríkt eftirbragð. Sérstaklega er nokkuð mikið sykur og humlabragð í lokin. Þessi blanda kallar svo auðvitað strax á annan sopa. Bjórinn er þó ekki hentugur þegar kemur að mikilli magndrykkju. Mig grunar að eftir svona 4-6 flöskur sé aðeins farið að svífa á mann.
Hér er kominn bjór sem ég set við hliðina á því besta sem ég hef drukkið. Þar trónir auðvitað hæst Augustiner Helles sem er minn uppáhalds bjór. Það er hins vegar erfitt að bera saman helles og stark/hveitibjór. Þetta eru gjörólíkar týpur með sitthvort áhugamálið.
Þar sem þetta er að hálfu hveitibjór þá er þetta líka tilvalinn bjór fyrir þá sem ekki drekka áfengi, enda eru bæði hveitbjórinn og starkbjórinn nær því að vera matur heldur en bjór.
Aftur fær bjórinn frá Schneider Weisse hæstu einkunn! Ég hvet alla drekkandi einstaklinga til að verða sér út um flösku í næsta drykkjarvörumarkaði og smakka.