Alt básúna

Til þess að gleðja fólkið í blokkinni sem ég bý í keypti ég mér þessa fínu Alt básúnu á Ebay.de.

alto.jpg

Þetta er alt báshúna í Eb, sem þýðir að hún hljómar ferund hærra heldur en venjuleg tenór básúna. Það er því auðveldara að spila hærri nótur heldur maður er vanur.
Núna þarf ég bara að redda mér handbók með gripnum og þá getur fólkið í kringum mig notið fyrsta flokks tónlistar.

13 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    júní 2, 2007 @ 4:03 pm

    Nú árið er liðið verður þá hér eftir í As-dúr en ekki Es-dúr…
    Eru ekki allar legur hlutfallslega á sama stað á altbásúnu og á tenórbásúnu?

  2. Brynjar said,

    júní 2, 2007 @ 10:03 pm

    Já, þú verður að senda mér nýja útsetningu, þá auðvitað í As-dúr! Ég get þá byrjað að æfa hana fyrir næstu áramót.

    Svona við fyrstu notkun virðast legurnar vera hlutfallslega á sama stað og á tenórnum. Það á hins vegar eftir að taka nokkurn tíma að ná tökum á þessu enda ansi mikill stærðarmunur. M.ö.o. þá eru allar nótur falskar hjá mér núna.

  3. Helga said,

    júní 3, 2007 @ 11:41 pm

    Til hamingju með þetta, það styttist þá í það að við stofnum okkar eigin Global Kryner, er það ekki!!!!!!!!!!???

  4. Brynjar said,

    júní 4, 2007 @ 7:26 am

    Jújú, reyndar er næst á dagskrá að finna jóðl námskeið í Ölpunum, þá fyrst eru manni allir vegir færir!

  5. Finnbogi said,

    júní 11, 2007 @ 3:06 pm

    Þetta mun þá örugglega hljóma unaðslega um áramótin, því langflestar nótur eru ennþá falskar hjá mér á bassabásúnuna. Ætli tvær falskar básúnur núlli hvor aðra út?

  6. Finnbogi said,

    júní 11, 2007 @ 5:02 pm

    Og varðandi jóðlæfingarnar vil ég benda á geisladiskinn Die lebfrischn Buam aus Tirol sem má nú finna á ednu. Þar er Franz Kupfner yfirjóðlari.

  7. Brynjar said,

    júní 12, 2007 @ 9:51 pm

    Þó svo að tvær fiðlur vegi ekki upp fölsku nóturnar í hvorri annari, þá er ég sannfærður um að tvær falskar básúnur vegi hvor aðra upp og niðurstaðan verðir hinn fullkomni tónn. Í síðasta lagi eftir 3 masskrug fer þetta að hljóma vel.

    Er útsetningin væntanleg? Ég á enga nótur fyir alt básúnu ennþá, það væri fínt að fá fystu nóturnar til að æfa.

  8. Þröstur said,

    júní 13, 2007 @ 10:17 am

    Jæja, farðu nú að koma með nýjan bjór dagsins. Alveg glatað að hafa þessa mynd af einhverri ljótri básúnu þarna á toppnum. Ég get fyrirgefið skrifleysið þegar ég get treyst á að falleg mynd af girnilegum bjór á toppnum. En þessi básúna gerir ekkert fyrir mig :)

  9. Sunna Grimma said,

    júní 14, 2007 @ 10:56 am

    Það liggur við maður geri sér ferð þarna niðureftir til að fá að heyra í gripnum!

  10. Finnbogi said,

    júní 18, 2007 @ 3:39 pm

    Ég skal skrifa eitthvað skemmtilegt út og kippa með svo við getum spilað dúetta á Ítalíu.

  11. Haukur Páll said,

    júní 21, 2007 @ 6:56 am

    Èg erad leita ad Bassa Gítar, hefur einhver einn til ad selja?
    Kkv,
    Haukur
    GSM 0173 3921105

  12. Þröstur said,

    júní 26, 2007 @ 1:23 pm

    Hummmmmm…. er bjórinn nokkuð búinn í München? Það væri frekar súrt þegar ég kem í september að það væri bjórlaust.

  13. Brynjar said,

    júní 27, 2007 @ 7:30 pm

    Haukur: Ertu búinn að prófa að leita á Ebay? Það eru ótrúlegustu hluti sem finnast þar.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment