Stilli Vebba í heimsókn
Um daginn kíkti í heimsókn fyrrverandi vinnufélaginn og Hróarskeldufarinn Vilhjálmur Stefánsson. Hann staldraði í nokkra daga hér í menningarborginni og undirbjó sig andlega sem og líkamlega fyrir hina blautu Hróarskeldurhátíð (sem hefur einmitt aldrei verið blautari heldur en núna).
Þrátt fyrir knappan tíma sem við höfðum náðum við þó öllu því helsta sem München og nágrenni býður uppá.
Við klifum Zugspitze sem er hæsta fjall Þýskalands.
Þarna uppi eru svo eitt af aðal skíðasvæðum þjóðverja, en því miður var ekki nógu mikill snjór til að skíða niður.
Þegar upp á topp var komið tók á móti okkur sá bjórgarður í Þýskalandi sem er í mestri hæð
Hér sést Villi virða fyrir sér stórkostlegt útsýnið alla leið yfir til Ítalíu. Það er ekki oft sem maður getur séð Þýskaland, Austurríki og Ítalíu frá einum og sama punktinum
Við kíktum svo aðeins á Schloss Neuschwanstein
Einnig var komið við í Andechs klaustrinu
og drukkinn bjór
Dagur í Salzburg er svo eitthvað sem allir þurfa að prófa
Því miður náði ég ekki fleiru markverðu á mynd.
Við fórum svo auðvitað í bjórgarð þar sem Villi heillaðist af hreinleikaræktaða bjórnum og vel saltaðri brezu með obazda. Ég á heldur engar myndir af því þegar góðkunningi Villa, Stilli Vebba, kíkti í stutta en snarpa heimsókn. Kannski að Villi eigi einhverjar myndir af honum.
Villi flaug svo héðan beint á Hróarskeldu þar sem hann svaf í þvagblandaðri leðju næstu daga á eftir. Myndir þaðan má finna hér.
f.willy said,
júlí 11, 2007 @ 7:25 pm
Þú gleymdir að minnast á þá stórkostlegu lífsreynslu að borða snitsel í 2700 metra hæð yfir sjávarmáli. Það var rosalegt.
Ég er kominn heim eiturhress og búinn að skafa mestu þvagleðjuna af mér. Á eftir að fara yfir mínar myndir til að sjá hvort ég hafi ná einhverju fleiru markverðu á filmu. Gæti jafnvel leynst mynd þar af Stilla Vebba í orlofi (sjálfur var ég bara í fríi).
f.willy said,
ágúst 8, 2007 @ 1:03 am
Búinn að setja fyrsta áfanga af minni hlið á málinu hingað.
Þröstur said,
ágúst 10, 2007 @ 2:47 pm
Kemur engin ferðasaga af stóru Ítalíuferðinni hingað inn? Ég bíð spenntur.