Kaupmannahöfn
Þá er ég kominn til baka úr litlu Kaupmannahafnar ferðinni.
Ég, eins og flestir samlandar mínir, naut þeirra miklu forréttinda að læra dönsku í örugglega 8 ár í grunn- og framhaldsskóla. Með þetta nám á bakinu átti ég því von á því að koma sterkur inn þegar kæmi að því að tala við heimamenn.
Því miður varð ég fyrir ansi miklum vonbrigðum. Ég skildi ekki stakt orð í dönskunni auk þess sem enginn dani skildi dönskuna mína.
Þetta myndband hérna (úr norskum skemmtiþætti) segir eiginlega allt sem segja þarf:
Ætli ég geti ekki fengið endurgreiddan útlagðan kostnað við dönskunámið mitt…
Rúnar Óskarsson said,
september 5, 2007 @ 8:38 pm
Þú ert væntanlega að meina að þú þurfir að greiða sjálfur til baka útlagðan kostnað ríkisins af menntun þinni sem þú augljóslega sinntir ekki af alúð.
Ég var nefninlega líka í Danmörku um síðustu helgi og var fljótur að komast að því að danskan hefur bara farið einhvernveginn framhjá mér í skóla…
Sunna Grimma said,
september 6, 2007 @ 11:52 am
Danskan er furðuleg og danir eru enn furðulegri!
Þegar ég verð forseti Íslands eða bara menntamálaráðherra verður mitt fyrsta verk að skipta þessu hrogni út fyrir hina yndis hljómfögru sænsku sem ekkert mál er að skilja eða tala.