Oktoberfest
Eftir 6 daga hefst Oktoberfest. Af því tilefni makaði ég þrárri svínafeiti í Lederhosurnar mínar svo þær verrði örugglega reddý þegar kallið kemur.
Ein af best heppnuðu myndum sem ég náði á Oktoberfest í fyrra
Á næsta föstudag koma svo góðir gestir, Finnbogi og Þröstur, til þess að taka þátt í hátíðarhöldunum. Lifrin á því eftir að fá að finna fyrir því á næstu vikum…
Þröstur said,
september 16, 2007 @ 11:02 am
Æ, helv… styttist. En þetta er alveg hreint mögnuð mynd sem þú hefur náð þarna. Maður verður hálfsjóveikur af því að horfa á hana.
Finnbogi said,
september 16, 2007 @ 12:59 pm
Já, myndin fangar ágætlega það sem koma skal.
Brynjar said,
september 17, 2007 @ 9:23 am
Þetta er voða skrýtið. Það er eins og fókusinn á myndavélinni hætti bara að virka þegar maður er á hátíðarsvæðinu. Líklegast er þetta galli í myndavélinni minni.
Miðað við veðrið í gær og í dag þá ættum við að geta farið beint í Augustiner bjórgarðinn þegar þið komið. Þar verður hægt að taka létta upphitun (<5 lítra per haus) áður en allt byrjar á laugardeginum.
Þröstur said,
september 18, 2007 @ 8:24 am
4 dagar
Þröstur said,
september 19, 2007 @ 8:51 am
3 dagar
Brynjar said,
september 19, 2007 @ 8:58 am
Er kominn einhver bjórþorsti í þig?
Þröstur said,
september 19, 2007 @ 10:33 am
Nei, nei, af hverju heldurðu það???? Það er bara svo andsk…. langt síðan ég hef komist í Gústann í sínu natúral umhverfi. Og talandi um það: “Tveir dagar í Gústa”
f.willy said,
september 19, 2007 @ 7:20 pm
Þetta minnir mig nú bara á myndirnar sem canon vélin mín tók af svínahaxanum og líterskrúsunum í upphafi heimsóknar minnar… verst að það syndróm var ekki einangrað við bjórkjallarann.
f.willy said,
september 19, 2007 @ 7:20 pm
En ég sendi allavega hlýja strauma á októberfest, treysti að þú reynir að smygla eins og einni krús út fyrir mig
Þröstur said,
september 20, 2007 @ 9:06 am
2 dagar
Sunna Grimma said,
september 22, 2007 @ 11:33 am
Þetta er afar glæsileg mynd. Ég væri þokkalega til í að mæta og fagna með ykkur. Kannski á næsta ári, eilíft barnavesen á okkur hérna megin…