Das ist einfach zu laut!

Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt glæsilega tónleika í gærkvöldi hér í München. Heiðurskonsúll Íslands í München, Friederich N. Schwarz, bauð íslendingunum í borginni þangað auk þess sem hann var með flotta móttöku eftir tónleikana. Á dagskrá voru íslensk lög auk einnar svítu eftir Carl Nielsen.

Þar sem Rúnar bróðir leikur með hljómsveitinni þótti ástæða til að fagna hressilega eftir tónleikana. Ég tók því frá borð á ítölskum veitingastað hér í nánd þangað sem helstu þungaviktarmenn úr hljómsveitinni (horn + slagverk) og kjarninn úr SÍMON-i mætti. Þegar lokaði þar var svo haldið heim á Schellingstrasse þar sem kassi af Agustiner bjór beið örlaga sinna.

bjor.jpg

Þegar leikar stóðu sem hæst og diskurinn “Björgvin og Sinfó” var rétt farinn að hitna kom elskulegur nágranni minn sem býr fyrir ofan mig og þrumaði yfir mig. Kjarninn í þeirri ræðu var í stuttu máli:

Das ist einfach zu laut!

Það er nefnilega þannig að ef að þú ert þýskur, nágranninn fyrir neðan þig hefur ekki haldið alvöru hávaða partý í meira en 9 mánuði, þú ert á aldrinum (25-30) og átt ekki börn, þá verður þú að komast í rúmið á laugardagskvöldi í síðasta lagi klukkan eitt eftir miðnætti, annars gætir þú átt yfir höfði þér að sofa frameftir daginn eftir… og það á sunnudegi. Það er eitthvað sem maður vill ekki lenda í.

En kvöldið var gott og allir skemmtu sér vel (nema auðvitað vansvefta fólkið fyrir ofan mig). Hugsanlega voru þó einhverjir þreyttir sem þurftu að vakna 5:30 til að taka rútu áleiðis heim.

4 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    nóvember 12, 2007 @ 1:23 am

    Vissi guttinn fyrir ofan þig ekki að Herr Óskarsson hefur leyfi húsvörðunnar til að halda partý hvenær sem er? Kvartaðirðu ekki við Emmu í morgun?

    Herr Friðfinnsson virðist greinilega hafa verið of upptekinn eftir tónleikana til að komast úr mörgæsarátfittinu. Hvers vegna er Maßkrugin hans ekki með á myndinni?

  2. Brynjar said,

    nóvember 12, 2007 @ 7:43 am

    Reyndar var það guttínan af efri hæðinni sem kom, Brigitte Fabia Schneider. Það virðist hinsvegar vera eitt og annað sem þau þarna upp eiga eftir að læra. En þar sem þetta fór ekki formlega í gegnum Húsvörðuna, þá telst þessi kvörtun ekki tæk. Ég treysti því að þetta fari í rétta farvegi hjá Húsvörðunni og komi ekki fyrir aftur.

    Maßkrugin er svo stór, þetta var spurning um val, mynd af fólki eða krús. Mörgæsaáttfittið er hins vegar ansi flott, þannig að það kemur mér ekki á óvart að fólk eigi erfitt með að fara úr búningnum ef maður er á annað borð kominn í hann.

  3. Rúnar Óskarsson said,

    nóvember 13, 2007 @ 10:42 pm

    Og við þetta má bæta að við Emil þökkum kærlega fyrir okkur. Það er fínt að fá að vera í MUC í nokkra klukkutíma og ná að hrista ærlega uppí öllu á Schelling…
    Takk fyrir.

  4. Emil Friðfinnsson said,

    nóvember 14, 2007 @ 9:53 am

    Þakka einnig fyrir vel lukkað teboð!

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment