Unnar kjötvörur
Svona eiga þeir félagar skinka og salami að líta út (3 tegundir af skinku og 6 af salami):
Af einhverjum orsökum er þetta kallað skinka á íslandi:
Svona samanpressaða saltdrullu veit ég ekki hvort hægt sé yfir höfuð að kaupa í München. Allavega fæst hún ekki hjá lókal slátraranum mínum.
Það skrýtnasta af öllu er svo að skinkan sem ég kaupi hérna úti, kostar miklu minna heldur en sú íslenska.
Rúnar Óskarsson said,
nóvember 19, 2007 @ 7:26 am
Þetta er misskilningur Brynjar. Íslenskur matur er sá besti, fallegasti og hollasti í heimi. Þess vegna þarf að passa uppá með öllum ráðum að við Mörlandar mengumst ekki af útlensku óæti. Ég vona að þú sért ekki að borða þetta sjálfur!
f.willy said,
nóvember 19, 2007 @ 9:07 am
Það besta sem völ er á í skinkumenningu heimsins er tvímælalaust “Brauðskinka með viðbættu vatni”. Yndislegt að finna saltið og bindiefnin leysast upp á tungunni og gæla við bragðlaukana.
Brynjar said,
nóvember 19, 2007 @ 9:30 am
Auðvitað er allt best á Íslandi, enda var þetta meira sett inn svo mér yrði vorkennt að geta ekki keypt alvöru fullunnar kjötvörur hérna úti (ætli “Brauðskinka með viðbættu vatni” sé ekki efri mörk á því hversu mikið má vinna eina kjötvöru).
Það er líka ótækt að ég geti keypt skinku á hagstæðu verði, maður missir alla virðingu fyrir matnum þegar maður borgar eðlilegt verð fyrir hann.
Er einhver séns að þið getið sent mér eins og einn pakka af “Brauðskinku með viðbættu vatni”?? Mig er farið að langa í alvöru mat!
Sunna grimma said,
nóvember 19, 2007 @ 12:10 pm
Sópaðu bara upp það sem fellur á gólfið þegar þú borðar þýsku skinkuna þína, já eða taktu bara sóphring um allt húsið, settu í blandara ásamt vatni, salti og msg og smyrðu því á brauðið þitt. Þá ættirðu að vera kominn með nokkurn vegin íslenska eðal brauðskinkufíling.
Bjarki said,
nóvember 19, 2007 @ 2:40 pm
Þetta sem Sunna talar um er væntanlega uppskriftin sem dönsku einokunarkaupmennirnir notuðu hér á sínum tíma með miklum vinsældum enda hefur dönsk skinka varla þótt hæf til manneldis á Íslandi alveg “óunnin”. Ég myndi samt passa mig á því Brynjar að þetta gæti þótt óttalegt sull ef þú notar ekki hreint íslenskt vatn. Það er lykillinn.
Brynjar said,
nóvember 19, 2007 @ 2:48 pm
Ég þakka góð ráð.
Ætli ég sturti ekki úr ryksugupokanum mínum (það sparar mér vinnuna við að sópa af gólfinu), blandi útí slatta af salti, vatni og msg og þeyti saman. Það er helst spurning hvaða rotvarnarefnum ég ætti að gusa út í?
En það er verst með vatnið eins og Bjarki segir. Því miður á ég bara kalkríkt, hart Munchenar vatn sem gæti valdið því að drulluklessan mín fengi á sig leiðinlega hvíta áferð í stað þess að verða grá, eins og alvöru brauðskinka.
Rúnar Óskarsson said,
nóvember 20, 2007 @ 7:11 am
Varðandi rotvarnarefnin þá mæli ég með að þú leitir ráða hjá íslenskum bjórframleiðendum. Þeir eru sérfræðingar í þeim málum og eru með E-efna flóruna alla á hreinu.
Finnbogi said,
nóvember 20, 2007 @ 2:00 pm
Gleymdu heldur ekki sojamjölinu sem er notað til að drýgja brauðskinkuna.
stebbi said,
desember 4, 2007 @ 10:44 pm
Djöfull er þetta girnileg skinka.