1. des
Íslendingafélagið í München hélt venju samkvæmt Fullveldisdaginn hátíðlegan. Í þetta skiptið lá leiðin á Weisses Brauhaus sem er staðsett í hjarta borgarinnar, rétt við Marienplatz.
Ekki bara býður brugghúsið upp á besta hveitibjór í heimi, heldur er maturinn alveg stórkostlegur.
Hér gefur á að líta svínakjötshleifinn í Aventinusarbjórsósunni (auðvitað með kartöfluknödeli) sem ég borðaði.
Því miður náði ég ekki mynd af weißbierknödelinu sem Formaðurinn át, en ég held að ég hafi aldrei séð jafn girnilegt knödel á ævinni. Ég náði hins vegar fínni mynd af svíninu sem Davíð át
Takið eftir hvernig svín og knödel nánast renna saman í eitt…
Eftir staðgóðan hádegismat og einn bjór var haldið á jólamarkaðinn þar sem áhugasamir gátu fengið sér smá Glühwein að drekka.
Eftir stutt stopp í Dallmayr þar sem keyptar voru unnar kjötvörur hófst svo afmælisveisla hjá Davíð. Þar var boðið var upp á Agustiner bjórtunnu sem lagðist mjög vel í gesti.
Davíð fær hrós fyrir góða veislu. Sérstaklega vil ég minnast á pinnamatinn, sem var virkilega framúrskarandi!
Davíð said,
desember 6, 2007 @ 2:44 pm
Aldrei hef ég áður séð þvílíka og aðra eins skilvirkni og í pinnamatargerðinni þinni Brynjar! Gott að sjá að þú hefur tamið þér fleiri þýska siði en bjórdýrkun og svínsát
dþt
Finnbogi said,
desember 9, 2007 @ 11:07 am
Eftir hópmyndinni að dæma þarf fljótlega að fara að breyta nafni félagsins í Félag Íslendinga og annarra í München og nágrenni og víðar. Ég sé alla vega ekki betur en að Íslendingar búsettir í München séu í minnihluta þarna…