Skíði - Hochzillertal

Við Dabbi skelltum okkur á skíði í gær til Kaltenbach. Undanfarið hefur mikið snjóað í Austurríki þannig að skíðasvæðin eru mörg hver búin að opna.

Skíðafærið var eins og best verður á kosið auk þess sem brekkurnar voru svo gott sem tómar. Það eina sem hefði getað verið betra var dagsformið mitt… en lappirnar voru hissa á að vera mættar í skíðaskó og áttu alls ekki von á því að þurfa erfiða heildan dag í brekkunum. Það vill til að það eru næg verkefni sem hægt er að snúa sér að þegar lappirnar gefast upp.

Nokkrar myndir frá því í gær:

s1.jpg


s2.jpg


s3.jpg


s4.jpg

4 athugasemdir »

  1. f.willy said,

    desember 16, 2007 @ 5:11 pm

    Þetta er ekki ósvipað útsýninu úr hlíðarfjalli okkar Akureyringa. Þetta er þörf áminning um að fara að drífa mig þangað, þó ekki nema bara til að taka nokkra tugi kílómetra á gönguskíðum.

  2. kristín said,

    desember 17, 2007 @ 12:36 pm

    næææs.. er ekki frá því að þið hafið átt betri dag en ég í terminal 2 í frankfurt…

  3. Brynjar said,

    desember 20, 2007 @ 4:59 pm

    Nei nei, ég hefði miklu frekar viljað vera ósofinn í Frankfurt, sjá að búið sé að fella niður flugið mitt og þurfa að redda mér dýrri gistingu yfir eina nótt í menningar- og skemmtiborginni Frankfurt. Terminal 2 er líka svo mikil afþreyingarmiðstöð, ég man ekki betur en það hafi verið þessi fíni standur þarna sem selur kaffi á íslensku verði.

  4. gunnare said,

    janúar 2, 2008 @ 4:36 pm

    Ekki ósvipaðar aðstæður þarna og í Bláfjöllum þessa dagana. Þ.e. enginn á svæðinu og engar raðir.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment