Þáttur 127. Wer erschoß Asmy?
Loksins fékk ég fleiri Derrick þætti á í hús.
Betra sjónvarpsefni þekkist auðvitað ekki.
Loksins fékk ég fleiri Derrick þætti á í hús.
Betra sjónvarpsefni þekkist auðvitað ekki.
RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun
Mundi said,
desember 20, 2007 @ 4:07 pm
Gaman að heyra. Ég geri ráð fyrir að þú heldir nú ekki út jólin án þess að horfa á þetta þrisvar til fimm sinnum. Þú getur þá lánað mér þetta starx í janúar vonandi (panta hérmeð að vera sá fyrsti að fá þetta lánað), nema þú viljir kíkja á þetta sjötta sinni og við tökum þá bara gott Derrick kvöld á þetta.
Við þurfum náttúrulega að komast yfir alla þættina einhvern tíma og glápa á þá alla í einu, hvað eru þetta ekki 90 þættir klukkutími á lengd, samtals 3.75 sólahringar. Verðum náttúrulega að gera ráð fyrir að við þurfum að leggja okkur svona 5 tíma á hverjum tveimur sólahringum, ýta á pásu þegar einhver fer á klóið, þegar við steikjum schnitzel, Schwienebraten og Knödel með þessu, og þegar við förum til drykkjumannsins að ná í nýja tunnu. Það fer sum sé svona vika í þetta! Hvað ertu að gera í páskafríinu?
Mundi said,
desember 20, 2007 @ 4:14 pm
Hér skeit ég aldeilis á mig með því að gera ráð fyrir 90 þáttum. Þeir eru vitanlega 281, samtals 11 sólahringar og 17 klukkutímar. Hvað ertu að gera í sumarfríinu?
Brynjar said,
desember 20, 2007 @ 4:57 pm
Já, þetta heitir að kúka upp á bak! Allir vita að það voru framleiddir 281 þættir.
Því miður er bara búið að gefa lítinn hluta af þeim út á DVD, ég veit ekki á hverju þetta stoppar, en þessir diskar hljóta að renna út eins og heitar lummur.
f.willy said,
janúar 7, 2008 @ 11:56 am
Ég skellti mér í Hlíðarfjall á skíði í gær, svipaðist um eftir þér en sá hvergi… ætlaðirðu ekki að taka dirty weekend á Akureyri?
Brynjar said,
janúar 10, 2008 @ 10:37 pm
Nei, ég náði víst ekki að koma norður í dörtý víkend í þetta skiptið. Þú verður bara að redda þessu og koma með mér á skíði í Alpana. Þú gætir sameinað það við starkbierfest, þá fengi líka Stilli Vebba að koma sterkari til leiks.
f.willy said,
janúar 12, 2008 @ 5:07 pm
Vel á minnst, Stilli er búinn að hafa hægt um sig síðan hann fór á klóið heima hjá ykkur síðasta sumar, en kom virkilega sterkur inn í gærkvöldi í Libra-samkomu útí sveit (minnir að hann hafi meiraðsegja gert amk eina tilraun til að hringja í þig). Eftir að hafa drukkið sig til óbóta útí heitum potti þar sem rítur hvússi kom meiraðsegja við sögu, þá tók hann sig til og skreytti hótelherbergið vel og vandlega á frekar ógeðfelldan hátt. Hótelþernan fékk svo ágætis tips fyrir að þrífa það upp, þó það hefði reyndar mátt vera hærra miðað við hversu verkið var viðamikið.