Knödel

Jólin fóru venju samkvæmt vel fram. Hápunktur þeirra í þetta skiptið var þegar ég og Finnbogi elduðum heimagert knödel sem léttan forrétt. Um afganginn af veislunni sá svo Þröstur, sem eldaði nautalund í aðalrétt og heimalagaðan ís í eftirrétt.

Knödel er einn af þeim réttum sem af einhverjum orsökum hefur ekki náð nógu mikilli útbreiðslu á Íslandi. Þeir sem til þekkja vita hins vegar að þetta er einn af hápunktum þýska eldhússins. Í raun er ekki hægt að tala um svínakjöt og bjór nema minnast á knödel í sömu andrá.

Til eru óendanlega margar tegundir og útfærslur af knödeli. Vinsælast hér í Bæjaralandi eru þó brauðknödel og kartöfluknödel. Einnig hef ég smakkað hveitibjórsknödel sem var mjög gott.
Knödel er oftast borið fram sem meðlæti með vel elduðu svínakjöti og hefur það megin hlutverk að sjá um að soga alla sósuna upp af disknum inn í sig. Knödel er alltaf þriðju eða fjórðu kynslóðar matvara þ.e. mest allt af innihaldinu er vel eldað og brasað þegar knödelið er búið til og svo er það allt hnoðað saman, soðið og steikt. Knödel kemst því líklegast seint í matreiðslubækur þeirra sem aðhyllast hráfæði.

Tegundin sem við elduðum var Kartöfluknödel með bjórsósu og rauðkáli.

Hér gefur að líta grunninn þegar búið er að hnoða saman kartöflum, mjöli, beikoni, smjöri og allskonar kryddum í góðan deighleif:

knodel3.jpg

Eftir að búið var að sjóða knödelið í var það skorið niður og steikt hressilega í miklu smjöri. Eins og sést augljóslega á þessari mynd liggur líka beint við að rífa knödelið niður eftir steikingu, blanda því saman við egg og hveiti, og steikja svo snitzel upp úr því:

knodel2.jpg

Með knödelinu var borin fram dýrindis heimalöguð bjórsósa. Einnig var góð sletta af rauðkáli látin fylgja með:

knodel.jpg

Með knödelinu drukkum við svo dökkan Kalda sem féll mjög vel að bjórsósunni og small auðvitað við knödelið.

4 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    janúar 11, 2008 @ 3:31 pm

    Úff, ég var búinn að gleyma því hve girnilegt knödelið var.

  2. Einar said,

    janúar 11, 2008 @ 3:51 pm

    Þetta lítur vel út hjá ykkur félögunum. Þið hljótið að hafa dressað ykkur upp í Lederhozen og alles á meðan að þið mölluðuð þetta og etv. hlýtt á Franzl Lang taka nokkur jóðl.
    Kveðja.
    Einar.

  3. Þröstur said,

    janúar 11, 2008 @ 3:52 pm

    Þetta var snilld… finnst samt vanta smá áhersluna á negulnaglabraðið sem var að rauðkálsgúmmelaðinu. Það kom mjög sterkt inn daginn eftir og hef ég aðeins einu sinni vaknað með minna bjórbragð í munninum morguninn eftir þetta marga bjóra og var það þegar Bogi bauð upp á hvítlauks-tzatziki sósuna frægu.

    Ég verð að vera að sammála því að í knödelinu krystallast bæreisk matargerð, þeir eru ekkert að hugsa neitt allt of mikið um útlitið (þó að sjálfsögðu sé knödelið þetta kvöld alger undantekning á því) en mikið bragðast það vel.

  4. Finnbogi said,

    janúar 20, 2008 @ 10:47 pm

    Einar, það var ekki Franzl Lang heldur Franz Kupfner sem jóðlaði þetta ágæta kvöld, ásamt öðrum félögum í karlakór Schwoich am Kufstein.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment