Der Alte

Um daginn fórum við Ásta í skíðaferð til Austurríkis. Tilefnið var nokkur aukning í aldri hjá mér, í raun má eiginlega segja að ég hafi mjakað mér yfir á fertugsaldurinn.

Bærinn sem við gistum í heitir Söll. Skíðasvæðið upp af bænum er einn hluti af stærsta samhangandi skíðasvæði Austurríkis. Þar er hægt að renna sér endalaust eftir nýjum brekkum og ferðast langar vegalengdir inn eftir dalnum. Þessa þrjá daga sem við vorum þarna vorum við því nánast allan tímann að prufa nýjar brekkur.

skidi1.jpg

Fáir eru betri knödelgerðamenn en Austurríkismenn og óvíða bragðast knöðlarnir betur en uppi á hæsta tindi*

skidi2.jpg

Sá gamli þurfti svo auðvitað að hvíla sig eftir erfiðan dag í brekkunum

skidi3.jpg

Veðrið lék við okkur allan tímann, skyggni ágætt og enginn stormur.

skidi4.jpg

Ásta áður en hún brunaði niður fjallið.

skidi5.jpg

* Fyrir áhugasama þá er þetta girnileg beikonknödelsúpa (með súrdeigsbrauði) sem bragðaðist jafnvel enn betur en má dæma af myndinni.

11 athugasemdir »

  1. kristín said,

    janúar 28, 2008 @ 10:37 pm

    ég er ekki sátt við að einungis sé haldið uppá þennan merkisáfanga í kyrrþei! hvenær verður boðið í ölæði og almennar óspektir, gamli?

  2. f.willy said,

    janúar 29, 2008 @ 8:44 am

    Til hamingju með afmælið, þú berð aldurinnn vel. Þekki það einnig að matur bragðast alltaf best upp á fjallstindum, svo framarlega sem maður hafi erfiðað sem minnst við að komast upp á fjallstindinn.

  3. Þröstur said,

    janúar 29, 2008 @ 9:18 am

    Já, til lukku með daginn um daginn. Merkilegur áfangi og ekki allir sem ná honum svona snemma :)

  4. Finnbogi said,

    janúar 29, 2008 @ 10:31 am

    Þröstur, áttu við að Brynjar sé þrítugur um aldur fram?

    Þessi beikonknödelsúpa er óheyrilega girnileg og greinilega afmælisveisla út af fyrir sig. Er það sem mér sýnist að knöðlarnir séu líka úr súrdeigsbrauði?

  5. Bjarki said,

    janúar 29, 2008 @ 1:09 pm

    Til hamingju með afmælið!

  6. Einar said,

    janúar 29, 2008 @ 2:54 pm

    Til hamingju með afmælið Brynjar!
    Þú nálgast mig óðfluga.
    Kveðja.
    Einar.

  7. Sunna Grimma said,

    janúar 29, 2008 @ 4:26 pm

    Til hamingju með afmælið.
    Knödel át heldur manni greinilega afar unglegum, ég hefði svo getað svarið þú værir ekki degi eldri en 29…

  8. Kristín belgur Hreinsdóttir said,

    janúar 30, 2008 @ 2:49 pm

    Sorry Brynjar en Knödel er mesta ógeð sem fundið hefur verið upp nokkurntíma :)

    Til lukku annars :)

  9. Brynjar said,

    janúar 30, 2008 @ 7:56 pm

    Ég þakka afmæliskveðjurnar.

    Kristín (nágranni): Afmælisveislan hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins aldna. Það er þó aldrei að vita nema ég haldi góða Aventínusar starkhveitbjórshátíð svona þegar allir eru á svæðinu.

    Finnbogi: Já, knöðlarnir voru svo sannarlega hnoðaðir úr súrdeigsbrauði. Hefði ég ekki verið búinn að taka stóra afmælisveislu kvöldið áður, þá hefði í slaufað henni. Þetta verður ekkert toppað.

    Kristín (belgur): Ekki sammála. Knödel er fegursta form matargerðar og bragðið er óaðfinnanlegt :)

  10. Davíð said,

    febrúar 2, 2008 @ 2:06 pm

    Namminamm, mikið gæfi ég fyrir einn alvöru knöðul núna!
    Skrítið samt að sjá Brynjar hvíla sig eftir erfiðan skíðadag án ölkrúsar, elliáhrif..?

  11. Gunnar Már said,

    febrúar 5, 2008 @ 1:50 pm

    Feykilega girnilegt Knödel og skíðasvæðið lúkkar vel. Sé að á slökunarmyndinni ertu búinn að afgreiða það besta við skíðamennskuna: Fara úr klossunum.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment