Erdinger Urweisse
Bjór dagsins að þessu sinni er Erdinger Urwiesse sem kemur frá Erdinger Weißbräu brugghúsinu staðsettu í smábænum Erding í úthverfi Münchenar.
Erdinger Weißbräu var stofnað árið 1886. Eins og nafnið gefur til kynna liggur sérhæfingin í hveitibjórum. Ólíkt mörgum öðrum brugghúsum þá er allur bjórinn þeirra bruggaður í brugghúsinu í Erding. Það er því ekki hægt að fá átöppunarleyfi fyrir bjórinn annarsstaðar. Bjórinn er fluttur út til yfir 70 landa og er brugghúsið stærsti framleiðandi hveitibjórs í heiminum í dag.
Í dag framleiðir brugghúsið 9 sortir af hveitibjórum, þar af er ein án áfengis og ætti því varla að telja með.
Á Íslandi hefur lengi vel verið hægt að kaupa Erdinger Mit feiner Hefe, ljós hveitibjór sem rennur ljúft niður. Það er sá bjór sem maður fær í brugghúsinu ef maður er ekki með neinar séróskir.
Bjór dagsins er að þessu sinni glæný bjórtegund frá Erdinger Weißbräu, Erdinger Urweisse. 11. desember síðastliðinn var bjórnum hellt á fyrstu flöskurnar upp í Erding. Bjórinn er 5.2% að styrk og er auðvitað bruggaður samkvæmt Þýsku hreinleikalögunum frá 1516.
Bjórinn er fallega gulur á lit með þéttu gruggi. Froðan fór nokkuð úr böndunum þegar ég hellti í glasið en var þó fljót að komast á réttan stað aftur.
Fyrsti sopinn er ljúfur, en ekki eins spennandi og ég hafði vonast eftir. Ýmis brögð koma þó fram, en ekkert þeirra er neitt sérstaklega áberandi, kannski einhver blanda af sveskjum, banana og birki (og jafnvel smá af viðbrenndu knödeli). Eftirbragðið er örlítið rammt og kallar ekki grimmt í næsta sopa. Það er helst að mann langi í einhvern annan bjór til að hreinsa munninn. Bjórinn er nokkuð léttur í munni, ólíkt því sem maður á að venjast með hveitibjóra.
Erdinger Urweisse fær ekki háa einkunn hjá mér. Það vantar miklu meiri fyllingu og þéttara bragð. Einnig er afleitt ef fyrsti sopinn kallar ekki strax á þann næsta. Ég get því ekki mælt með þessu nýja spili Erdinger manna.
Þröstur said,
janúar 31, 2008 @ 1:05 pm
Djö… er þetta ferskt að fá bjórrýni innan við tveimur mánuðum eftir að fyrsti dropinn rann. Samt óhress með vini mína frá Erding að geta ekki boðið upp á eitthvað betra en þetta. Ég fer þá bara í ríkið á eftir og fjárfesti í Egils þorrabjórnum til að fá eitthvað í sama kvailtí og þetta sull sem þú hefur greinilega verið að gæða þér á
Finnbogi said,
febrúar 1, 2008 @ 10:40 am
Það er svo sem gott og blessað að prófa sig áfram í hveitibjórunum en Schneider verður ekki svo glatt sleginn út.
Annars sá ég á síðunni hjá Stefáni Pálssyni að brugghúsið á Árskógssandi er farið að brugga Þorrakalda. Þótt Stefán hafi ekki verið hrifinn af bjórnum er hann örugglega betri en Egils þorrabjórinn.
f.willy said,
febrúar 16, 2008 @ 11:44 pm
Mikið assgoti er ég timbraður. Ekkert sem slær betur á timburmenn en lestur á bjórrýni.
Brynjar said,
febrúar 22, 2008 @ 2:13 pm
Villi, varstu að drekka íslenskan bjór?? Af hverju varstu svona timbraður?? Kom Stilli Vebba kannski í heimsókn…