Loksins komið sumar

Sumarið brast loks á hér á Mjaðarvöllum um helgina. Því var fagnað á viðeigandi hátt.

guuuuuusti.jpg

Glöggir lesendur taka kannski eftir því að myndin er tekin í höfuðstöðvunum

13 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    febrúar 25, 2008 @ 9:51 pm

    Djöfull ertu með lítinn bjór!

  2. Rúnar Óskarsson said,

    febrúar 25, 2008 @ 10:54 pm

    Sjitt maður, það er nú óþarfi að sparka í liggjandi menn. Sumarið er nú ekki alveg komið hérna. -10 gráður í morgun.

  3. Brynjar said,

    febrúar 26, 2008 @ 8:33 am

    Vissulega er bjórinn lítill (og ég get ekkert afsakað það), en það er eitt annað atriði við þessa mynd sem passar alls ekki. Nú er spurning hvort að lesendur átti sig á hvað sé að?
    Að launum fær sigurvegarinn 2 lítra af Augustiner Helles (sem viðkomandi verður að sækja heim til mín meðan ég bý ennþá úti)

  4. f.willy said,

    febrúar 26, 2008 @ 10:36 am

    Það sem passar ekki er að það er enginn nakinn karlmaður á fimmtugsaldri að spígspora á bakvið bekkinn… eða bíddu var það kannski annar garður?

  5. Brynjar said,

    febrúar 26, 2008 @ 10:43 am

    Það var víst í enska garðinum… En vissulega myndi það bæta myndina.

  6. Einar said,

    febrúar 26, 2008 @ 1:41 pm

    Þú ert ekki á bekk í sjálfsafgreiðslusvæðinu eins og vera ber, heldur situr þú á stól með pínulítinn bjór eins og fín frú í teboði. Ég öfunda þig samt.
    Kveðja.
    Einar.

  7. Rúnar Óskarsson said,

    febrúar 26, 2008 @ 1:47 pm

    Nei, ég fatta. Þú lyftir glasinu með hægri höndinni - og þú ert örvhentur!!! Svona, þarna er komið tilefni til að fara til Muc að leysa út ölið hjá þér.

  8. kristín said,

    febrúar 26, 2008 @ 2:02 pm

    þú skildir lederhosen eftir heima!!!! sem er náttúrulega til háborinnar skammar!!

  9. Brynjar said,

    febrúar 27, 2008 @ 8:05 am

    Ég sé reyndar að það hefur eitt og annað farið úrskeiðis við þessa myndatöku hjá mér (ég hefði þurft að vera í leðurhosunum, halda á líterskrúsinni með vinstri, vera á sjálfsafgreiðslusvæðinu og fá nakinn kall til að standa fyrir aftan mig), en allavega, ég hélt að svarið væri alveg augljóst!

    Ég er að drekka helles en ekki starkbier!! Núna er sterkbjórstíminn og þá á maður ekki að vera drekka ljósan bjór. Ef maður horfir á myndina þá blasir þetta alveg við manni.

  10. kristín said,

    febrúar 27, 2008 @ 9:11 pm

    pffff
    það að sterkbjórstíminn sé í gangi þýðir ekki að maður hætti að drekka helles…..

  11. Finnbogi said,

    febrúar 27, 2008 @ 11:31 pm

    Nei, einmitt, sterkbjórinn leggst bara ofan á ráðlagðan dagsskammt af helles.

  12. Finnbogi said,

    febrúar 27, 2008 @ 11:33 pm

    Úpps, aðeins of fljótur á takkanum. Ég ætlaði að bæta við að þótt páfinn hafi á sínum tíma leyft munkunum að drekka allt að 5 Maß af sterkbjór á dag, hefur það sennilega dugað þeim skammt - enda fagmenn á sínu sviði.

  13. f.willy said,

    febrúar 29, 2008 @ 10:13 pm

    Hell eða stark, eitt er víst að það er örugglega hægt að verða þokkalega hellaður á Starkbierfest. Hef það sterkt á tilfinningunni.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment