Starkbierfest - Nockherberg
Á síðasta föstudag klifu félagsmenn SÍMON-ar Nockherberg og skelltu í sig nokkrum krúsum af dýrindis Paulaner sterkbjór.
Paulaner hljómsveitin var á staðnum og flutti alla helstu Oktoberfest slagarana. Ólíkt mörgum öðrum bjórböndum á svæðinu þá eru þeir með ansi góðan túbuleikara. Ég náði hér smá skoti þegar hann leikur Klarinettu polkann. Myndbandið nær hápunkti eftir um það bil 28 sekúndur, þegar afgreiðsludama labbar framhjá með 15 líterskrúsir af Salvator.
Því miður get ég ekki boðið upp á neinar aðrar myndir þar sem myndavélin mín var eitthvað óvenju hreyfð allt kvöldið og allar myndirnar mislukkaðar. Líklegast er vélin eitthvað biluð.
Einar said,
mars 3, 2008 @ 3:21 pm
Hann er ansi liðtækur þessi túbuleikari - getur Finnbogi þetta?
Magnað annars með þessar myndavélar hvað þær vilja bila…
Brynjar said,
mars 3, 2008 @ 3:28 pm
Ég á ekki von á öðru en að Finnbogi geti spilað þetta. Hann á allavega bæði túbu og lederhosen!
Næst tek ég þrífótinn með mér á starkbierfest, þá ætti myndavélin að haldast kyrr.