Með lögum skal land byggja
…og bjór brugga.
Eins og ég hef minnst á áður þá er ansi mikið af lögum, reglum og bönnum hjá Þjóðverjum.
Það sem mér finnst einna skemmtilegast er hvað samfélagið allt tekur virkan þátt í þessu. Ekki bara passar fólk upp á sjálft sig, heldur eyðir það miklum tíma í að passa að allt fólkið í kringum sig brjóti engar reglur, boð eða bönn. Þetta fólk myndar sjálfboðaliðalögregluna sem sér um að veita manni allt það semfélagslega aðhald sem þörf er á í stóru samfélagi.
Ef ég til dæmis lendi í því að hjóla ljóslaus að kvöldi til, þá líður stuttur tími þangað til einhver öskrar blíðlega á mig og bendir mér á þessa dauðasynd. Þarna grípur samfélagið tímanlega inní og kippir mér snarlega úr umferð svo ég verði hvorki sjálfum mér né öðrum til ama.
Þeir sem sem búa í fjölbýlishúsi vita að það verða allir að leggjast á eitt svo sambýlið gangi snuðrulaust fyrir sig. Til að tryggja þetta hanga 5 miðar á þeirri stuttu leið sem liggur frá dyrunum mínum út úr húsinu.
1. München glímir við flokkunarvandamál
Hér er talað um hvað borgin glímir við mikið flokkunarvandamál á rusli. Þetta fær mann til þess að fá nagandi samviskubit flokka ruslið betur þegar maður fer út í ruslagám
2. Dyrnar eiga að vera lokaðar
Hér er maður einfaldlega minntur á að hurðin eigi að vera lokuð. Þetta er eðlileg krafa, enda eru hurðir ekki gerðar til þess að standa opnar.
3. Lokið dyrunum hljóðlega
Við viljum alls engar hurðaskelli í okkar fjölbýlishúsi. Þarna fær maður létta áminningu svo maður gleymi sér ekki í hita leiksins og skelli á eftir sér. Oftar en ekki hefur þessi miði bjargað mér frá því að skella harkalega á eftir mér (eins og ég er vanur).
4. Stóra flokkunarmálið
Um daginn fékk ég bréf frá hússtjórninni þar sem ég var minntur á að flokka ruslið mitt betur. Þarna uppgvötaði ég að ég hafði verið að henda tómum niðursuðudósum í ruslið, þvert á allar reglugerðir. Í dag fara þær í sér poka sem ég rölti svo með í grenndargám
5. Enga stubba í garðinn
Hér er verið að ítreka að garðurinn sé enginn öskubakki. Sumir síreykjandi nágrannar mínir hafa leikið þann ljóta leik að henda stubbunum beint út í garð eftir notkun.
Allir þessu litlu miðar valda því að ég verð smátt og smátt betri þegn. Maður hættir að vera sjálfselskur og grunnhygginn og fer að hugsa meira um fólkið í kringum sig.
Finnbogi said,
apríl 10, 2008 @ 9:50 pm
Já, mikið áttu nú Frau Mächtlinger að þakka…
María said,
apríl 21, 2008 @ 2:42 pm
Mér hefur verið sagt af Norður-Þjóðverjum að boðin, bönnin og sérstaklega sjálfboðaliðalöggan sé bæverskt fyrirbrigði og að Bæverjar séu sérstakur þjóðflokkur sem ekki ætti að rugla saman við venjulega saklausa Þjóðverja. Ég veit ekki alveg hverju ég á að trúa….
f.willy said,
apríl 23, 2008 @ 12:50 pm
Þeir leyfa manni ekki einu sinni að grípa með nokkrar tómar krúsir heim úr bjórgarðinum sem minjagrip… hnuss.
Sé í nr. 3 hefur einhver bætt við -n við Türe eftir á, þarna hefur prófarkarlesturinn á miðanum klikkað og einhver samviskusamur borgari bætt úr því.