Second hand
Fyrir þá sem ekki eiga Lederhosen nú þegar, þá getur verið sniðugt að kíkja í second hand búðir og reyna að leita sér að annarrar eða þriðju kynslóðar leðurbuxum. Ég fann þessa fínu búð í hjarta miðbæjarins sem einmitt sérhæfir sig í svona vörum.
Kostirnir við að kaupa sér notaðar leðurbuxur eru auðvitað óteljandi. Til dæmis er fyrri eigandi þá búinn að skella lífssýnum af öllum stærðum, gerðum og tegundum í buxurnar auk þess sem hægt er að treysta því að buxurnar angi af bjór og svínafeiti. Þetta er eitthvað sem getur tekið mörg ár að græja fyrir óreyndan buxnaeiganda.
Ef ég hefði ekki gert þau mistök sjálfur að kaupa nýjar buxur á sínum tíma, þá er ég ekki í vafa um hvað ég myndi gera í dag.
Finnbogi said,
júní 27, 2006 @ 9:08 am
Fjári er Þröstur heppinn að þú skulir vera búinn að finna þessa búð.
Þá þarf hann ekki að kaupa sér nýjar buxur í júlí…
Brynjar said,
júní 27, 2006 @ 1:37 pm
Hann gerir sér enga grein fyrir því hversu heppinn hann er…
Þröstur said,
júní 28, 2006 @ 11:07 am
Hummmmm…. Ég skal bara kaupa þínar buxur og þú færð þér alveg splunkunýjar second hand leður buxur. Þá erum við í raun báðir að fá secona hand buxur.