Snúinn niður með varnarúða - á stolnu hjóli

Ég lenti í þeirri skemmtilegu reynslu núna áðan að vera stoppaður á hjólinu af þungvopnaðri þýskri leynilögreglu. Ekki bara var ég nýbúinn að fara yfir á rauðu ljósi, heldur var ég líka að taka fram úr gömlum kalli á hjóli sem fór allt of hægt, ég var því úti á miðri götu í stað þess að halda mig hæfilega til hliðar.

snuinn.jpg

Hinn meinti glæpur minn var þó ekki brot gegn umferðarlögum heldur þótti þeim grunsamlegt að karlmaður af minni stærðargráðu væri á svona litlu (ákaflega karlmannlegu) kvennmannshjóli og hjólið hlyti því að vera stolið!

Eftir að ég lék leikinn “Do you speak english?” þá varð þetta allt miklu þvingaðra, því hvorugt þeirra talaði ensku. Þau gátu þó sagt mér að þau væru að leita að stolnum hjólum. Þau náðu líka að stama upp úr sér að maður ætti að ganga með vegabréf á sér en eina skilríkið mitt var 20 EUR seðill. Ég veit hins vegar ekki hvort það sé algengt að múta löggunni hérna svo ég beið með það. Það var þó ánægjulegt að fá smá þýskt uppeldi. Hér eftir veit ég að vegabréfið á að vera í vasanum.

Það var áhugavert fylgjast með lögreglunni að störfum. Þau skoðuðu hjólið hátt og lágt, tóku niður serial númer, opnuðu og lokuðu lásnum á hjólinu, hringdu símtöl, kölluðu í talstöðina og skrifuðu á einhverja miða. Eftir um það bil 10 mínútur fékkst það á hreint að hið stolna hjól var alls ekki stolið. Ég var því laus undan armi laganna, eða eins og hin hundtrygga aðstoðarkona sagði á reiprennandi ensku: “OK”.

Því miður voru þetta ekki félagarnir Derrick og Harry Klein. Þeir hefði aldrei látið sjá sig á Hondu-jazz leynilögreglubíl.

3 athugasemdir »

  1. Rúnar Óskarsson said,

    júní 17, 2008 @ 8:35 pm

    Þú hefðir nú getað bent þeim á að það væri 17. júní og það væri ekki viðeigandi að stöðva Íslendinginn á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Svo hefðir þú náttúrulega getað sungið fyrir þau Öxar við ána. Þau hefðu örugglega ekki trúað neinu illu uppá þig eftir að þú hefðir brætt þau með þeim söng!
    En þetta er náttúrulega svolítið mikið í viðtengingarhætti.

  2. Þröstur said,

    júní 18, 2008 @ 5:12 pm

    Þetta hefur verið skemmtilegt get ég ímyndað mér. En það verður þó að segjast að þetta er nú alveg fullkomlega eðlileg ráðstöfun hjá laganna vörðum. Þú ert augljóslega týpan sem hrellir gamlar bæverskar konur og hirðir af þeim reiðhjólin þeirra. Það er því alveg sama hvort þú framdir einhvern glæp eða ekki, þú hafðir bara gott af smá uppeldi :)

  3. f.willy said,

    júní 21, 2008 @ 3:45 pm

    Beittirðu ekki “Do you speak English?”-leiknum líka af mikilli fimi þegar við vorum næstum því borgaralega handteknir fyrir að laumast út úr bjórgarðinum án þess að skila krúsunum? Mig minnir það. En ég er sammála því að þér veitti örugglega ekkert af smá eftirliti til að halda þér í skefjum.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment