Bjórtíðindi - Oktoberfest 2008
Ég vil benda öllum þeim sem ætla að koma á Oktoberfest í haust að kíkja á þessa grein hér http://www.ganz-muenchen.de/oktoberfest/preise/bierpreis.html.
Inntakið í greininni er að verðið á líterskrúsinni í ár verður á bilinu 7.8-8.3 EUR. Þetta er hækkun um meira en 5% frá því í fyrra.
Fyrir okkur sem finnst gaman að fá sér eina krús eftir vinnu getur þetta þýtt auka kostnað upp á 3-4 EUR á einu kvöldi miðað við síðasta ár. Ef við summum það upp yfir alla hátíðina þá getur þetta verið aukakostnaður upp á tugi evra sem skellur á mann.
Finnbogi said,
júlí 14, 2008 @ 4:27 pm
Og enn versnar það: Þótt vissulega muni um að þurfa að borga 8.2 EUR fyrir gústann sinn í staðinn fyrir 7.8 EUR í fyrra, gerir það illt verra að evran kostar 126 kr. í dag en kostaði 82 kr. þegar ég kom út á sama tíma í fyrra. Þess vegna er það svo að þótt aukakostnaður hins almenna drykkjumanns (sem tekur 10 Maß yfir daginn) sé ekki nema um 4 EUR hækkar sami dagsskammtur um 4000 IKR milli ára.
Það er því eins gott að byrja strax að leggja allar umframkrónur í einhvers konar gjaldeyrisviðlagasjóð svo ég sitji ekki bara svangur og þyrstur á Engjunum í lok september.
Annars stefni ég á að verða mættur á Schelling um kl. 5 á morgun og í Gústa skömmu síðar. Leðurbuxurnar eru komnar ofan í tösku. Ert þú búinn að bera á þínar?
Brynjar said,
júlí 14, 2008 @ 5:34 pm
Er ekki hægt að sækja um drykkjubætur til þar til bærrar stofnunar? Hver sér annars um uppi- og viðhald á íslenskum drykkjumönnum?
Ég makaði umframfeiti af síðasta svínahaxa sem ég át í leðurhosurnar mínar. Auk þess datt hálfur bjór ofan í þær, smá tómatsósa og ögn af súrkáli. Þær ættu því að vera tilbúnar fyrir átök næstu daga.