Bjórinn búinn?

Það er ljótt að heyra ef tíðindin sem Morgunblaðið flytur okkur eru sönn. Samkvæmt þessari frétt hér þá eru Englendingar að klára allan bjórinn í Þýskalandi. Ekki nóg með að það fari mest fyrir þeim vegna hávaða og ólæta, þá þurfa þeira líka að klára bjórinn. Það er hætt við því að maður þurfi að fara að birgja sig upp svo ekki komi til skorts ástands. Ég á nú samt von á því að Bæjarar ráði við þetta, hér eru menn vanir að halda miklar bjórhátíðir, þannig að smá fótboltamót ætti ekki að setja allt úr skorðum.

Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að þetta lið sem er vant því að drekka kolsvart dökkt öl missi sig þegar það kemst í Þýska lagerinn, hann er bara svo rosalega góður.

2 athugasemdir »

  1. Sunna Grimma said,

    júní 29, 2006 @ 1:06 pm

    Heyrðu það fyrsta sem við hugsuðum þegar við heyrðum þetta með bjórinn væri að þú værir strax búinn að klára hann allann…
    Ekki fallegt að kenna greyins Tjöllunum um það.

  2. Brynjar said,

    júní 29, 2006 @ 1:11 pm

    Þú meinar það. Ég hafði ekki skoðað þetta frá þeirri hliðinni. Ég játa það alveg, ég á það til að fá mér einn og einn bjór ef vel liggur á mér. Ég ætti kannski aðeins að halda aftur af mér svo Tjallarnir fái eitthvað að drekka hérna.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment