Hopf - Helle Weiße
Bjór dagsins í dag kemur frá Weißbierbrauerei Hopf brugghúsinu, sem er hér suður af Mjaðarvöllum. Brugghúsið var stofnað 1910 og í dag er það þriðja kynslóð Hopf fjölskyldunnar sem sér um reksturinn. Hér er mynd af bruggmeisturunum með einn bjór í hönd (ég verð að eignast svona glas fyrr heldur en seinna).

Eins og nafnið á brugghúsinu gefur til kynna þá kemur eingöngu hveitibjór frá þeim, einar 8 tegundir. Tegundin sem ég smakkaði í dag heitir Helle Weiße og er dæmigerður hveitibjór, ljós, vel gruggugur með styrkleikann 5.3%.

Þessi bjór er frekar léttur (ólíkt mörgum öðrum hveitibjórum) og er ekki bragðmikill. Helsta bragðið er blanda af ávöxtum (létt bananabragð). Ég get vel ímyndað mér að þessi bjór sé góður fyrir byrjendur í hveitibjóradrykkju, enda rann hann mjög ljúft niður og skildi ekki eftir sig mikið eftirbragð.
Því miður á ég ekki rétt glas fyrir þenna bjór, en ég lét mér nægja að sötra hann úr Paulaner Wießbier glasi. Ég hugsa samt að ég skelli mér á rétt glas við tækifæri, það skiptir öllu máli að drekka bjórinn úr sínu eigin glasi.
Ég á ekki von á að ég kaupi þessa tilteknu bjórgerð aftur þar sem mér fannst hann of bragðdaufur, en ég gæti vel hugsað mér að smakka dökka hveitbjórinn frá þeim. Líklegast er hann nokkuð bragðmeiri og þyngri, auk þess væri líka gaman að smakka sterka og dökka hveitibjórinn. Bruggmeistararnir mæla með honum yfir vetrartímann þegar það er virkileg þörf á að fá yl í kroppinn. Það eru því næg verkefni framundan til að geta gert Hopf fjölskyldunni vel skil.
Þröstur said,
júlí 4, 2006 @ 11:38 am
Hvað á það að þýða að byrja bjórrýnina á svona sulli. Verður maður ekki að byrja á kóngnum sjálfum? Gaman að því að þú ert að spá í að skella þér á Hopf glas en gerir samt ekki ráð fyrir að kaupa bjórinn aftur
Brynjar said,
júlí 4, 2006 @ 12:44 pm
Umfjöllunin um kónginn kemur við tækifæri. Það þarf svosem lítið að segja, Gústi er besti bjór í heimi.
Varðandi glasið, þá þarf ég auðvitað að eignast rétt glas, þó ég kaupi ekki þennan bjór aftur, þá langar mig að smakka bæði dökka hveitibjórinn og sterka-dökka hveitibjórinn. Þessir bjórar drekkast allir úr sömu tegund af glasi.