Global Kryner
Í síðustu viku komu fyrstu gestirnir í heimsókn til okkar. Það voru þau Þröstur og Aðalheiður sem ákvaðu að kíkja við hjá okkur.
Föstudaginn 7. júlí (daginn sem þau komu) leigðum við okkur bíl og brunuðum til skemmti- og gleðibæjarins Mühldorf sem er c.a. 100 km. austur af München.
Þar um kvöldið var hin stórkostlega Austurríska hljómsveit Global Kryner með tónleika. Þeir örfáu sem ekki vita hvaða hljómsveit þetta er ættu að muna eftir henni úr Júróvisjón 2005 þar sem sveitin sló í gegn fyrir Austurríki með laginu Y Así.
Tónleikarnir voru auðvitað alveg frábærir og slá út alla aðra viðburði sem ég hef farið á hingað til. Stemmningin í salnum var líka ansi góð, sérstaklega eftir hlé þegar fólk var búið að hella í sig bjór og borða Bratwürst með.
Þar sem myndatöku voru bannaðar þarna þá gat ég því miður ekki tekið margar myndir, en hér fyrir neðan er þó eitt 24 mb myndband sem ég tók.
Finnbogi said,
júlí 15, 2006 @ 12:51 pm
Úff, þetta hefur verið mögnuð upplifun. Synd að þú skulir ekki hafa náð jóðlinu góða.
Er það sem mér sýnist að þið félagarnir hafið verið í yngri kantinum á tónleikunum?
Þó varla eins og á Kim Larsen tónleikunum í fyrra…
Brynjar said,
júlí 15, 2006 @ 2:23 pm
Neinei… þetta var ekkert í líkingu við Kim Larsen tónleikana, það var fáránlegt. Málið er að svæðinu var skipt í 2 hluta og við sátum í dýrari hlutanum. Fyrir framan okkur voru því bara virðulegir eldri borgarar í Mühldorf. Fyrir aftan okkur var aðeins yngra fólk.
Þröstur said,
ágúst 2, 2006 @ 11:04 am
Og nóta bene ég á jóðlið góða nánast komplett í 50 MB vídeófæl. Held hann sé nú inni á tölvunni hans Brynjars einhvers staðar þannig að hann ætti að geta hent honum inn. Annars verðum við að bíða eftir að ég fái snúru svo ég geti ælt þessu inn á tölvuna mína.