Stofna bankareikning

Að stofna bankareikning í Þýskalandi er einfalt mál. Hér er stutt samantekt á ferlinu.

Skref 1
Á netinu er hægt að finna umsókn og prenta út. Ég er í viðskiptum við Dresdner Bank og fann ég allt á þeirra heimasíðu. Þegar búið er að fylla út umsókina og prenta út, þá á maður að fara með umsóknina í næsta útibú eða senda hana á heimilsfang sem stendur á umsókninni.

Skref 2
Ég fór í næsta útbú. Þar tók á móti mér starsmaður sem sagði mér að ef ég vildi ekki að þetta tæki allt of marga daga, þá ætti ég að fara í mitt útibú (og jafnvel þó mér væri sama þá þetta tæki tíma, þá ætti þetta að fara í gegnum mitt útbú enda þyrfti minn persónulegi þjónustufulltrúi að hitta mig). Til að finna mitt útibú er hægt að fara á netið hjá bankanum. Í mínu tilfelli valdi vefsíðan bankaútibú sem er ekki næst heimilinu, en hvað um það.

Skref 3
Fara í rétt útibú vopnaður umsókn og vegabréfi. Þar er tekið við umsókninni og vegabréfið ljósritað fram og til baka. Starfsmaður þar kemur þér í skilning að núna gerist ekkert næstu 10 daga, umsóknin fari í venjulegt ferli hjá þeim. Í þessari heimsókn tók á móti mér minn persónulegi þjónustufulltrúi (sem ég gat svo ekkert talað við vegna tungumálaörðugleika).

Skref 4
Bíða rólegur í 10 daga.

Skref 5
Á 11. degi kom detbetkortið í pósti. Með fylgdi bréf sem sagði að frekari upplýsingar kæmu síðar

Skref 6
Á 12. degi kom stórt umslag fullt af “Velkominn í viðskipti við bankann” upplýsingum. Þar sem ég er útlendingur eru allar þessar upplýsingar á þýsku.

Skref 7
Á 13. degi kom pin númerið fyrir debetkortið. Kortið var því orðið nothæft fyrir búðir og hraðbanka.

Skref 8
Á 14. degi kom notandanafnið mitt í netbankann.

Skref 9
Á 15. degi kom lykilorðið í netbankann. Ég hélt að núna gæti ég loks farið að að nota bankann, en það var auðvitað ekki svo einfalt. Ennþá vantaði TAN númerin.

Skref 10
Á 17. degi kom blað með TAN númerunum mínum. Þetta eru númer sem þarf að hafa við höndina þegar maður gerir millifærslur í netbankanum.

Skref 11
Allt tilbúið!

Það tók því ekki nema tvær og hálfa viku að fá bankareikning með debetkorti og netbanka til að virka.
Þegar ég lít á þennan feril sé ég hvergi glufu til þess að hagræða. Þetta fer í raun og veru hröðustu leið í gegnum kerfið.

5 athugasemdir »

  1. JB said,

    júlí 27, 2006 @ 7:17 pm

    Velkominn í heimi fyrir utan Ísland…! Það er sama í Bandaríkjunum. Og fólk her á klakanum er alltaf að spyrja mér af hverju ég segi “lifið er gott og einfalt hér”.

  2. JB said,

    júlí 27, 2006 @ 7:20 pm

    E.S. Allar slikar upplýsingar eru á íslensku hér. Jafn fyrir útlendinga. :-)

  3. Brynjar said,

    júlí 27, 2006 @ 10:17 pm

    Já, maður sér það núna hvað margir hlutir eru einfaldir og þægilegir heima á Íslandi. Ég þurfti m.a. að stofna heimabanka á Íslandi í gær, og ég gat gert það gegnum síma :) Ég fékk bæði notendanafn og lykilorð símleiðis.

  4. Sunna Grimma said,

    ágúst 1, 2006 @ 8:50 am

    Ah, ætli þetta sé ekki svona svipað í skrifræðisríki Svía… ég er strax farin að hlakka til.

  5. Brynjar said,

    ágúst 1, 2006 @ 8:53 am

    Þetta var auðveldi hlutinn.
    Ég er að herða mig upp í að skrifa um samskipti mín við Das Kreisverwaltungsreferat. Það er stofnunin sem sér um skráningu í borgina, dvalarleyfi og þessháttar skemmtilegheit.

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment