Gestur í orlofi

Þessa dagana dvelur Finnbogi hér á Mjaðarvöllum í orlofi.
Í góða veðrinu skelltum við okkur í Hjartargarðinn

hjortur.jpg

og fengum okkur einn bjór

orlof.jpg

Fyrir bjóráhugamenn má geta þess að Hjartargarðurinn býður upp á Augustiner Helles úr tunnu. Þarna fær maður líka að skola krúsina sína sjálfur áður en hún er fyllt af bjór, sem gerir bjórdrykkjuna enn skemmtilegri fyrir vikið.

3 athugasemdir »

  1. Sunna Grimma said,

    ágúst 18, 2006 @ 8:25 am

    Er þá ekki boðið upp á ljúffenga hjartarsteik með bjórnum?

  2. Brynjar said,

    ágúst 18, 2006 @ 8:30 am

    Því miður verður maður að láta sér nægja að borða svínahaxa með súrkáli. Hirtirnir eru meira uppá skraut auk þess sem þeir halda líka athygli barnanna meðan foreldrarnir einbeita sér að bjórdrykkjunni.

  3. Finnbogi said,

    ágúst 22, 2006 @ 12:01 pm

    Nú, ég hélt að hirtirnir væru fyrir þá sem grilla sjálfir, enda inni á miðju grillsvæðinu…

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment