Austurríki - Sviss - Liechtenstein (og ekki Ítalía)
Helgina 18. til 20. ágúst fórum við Ásta ásamt Finnboga (sem dvaldi hér í orlofi í 10 daga) í helgarferð yfir í Alpana. Aðal takmarkið var að komast til Ernen þar sem Ásta hafði farið á píanónámskeið fyrir nokkrum árum. Farartækið var BMW hraðbrautarkaggi sem við tókum á Schönes Wochenend angeboti hjá Enterprise mönnum.
Á föstudeginum keyrðum við til Lindau. Þar setti ég ferðamannakittið á mig (sjá mynd) og við röltum um.
Því miður vorum við of seint á ferð til þess að geta farið í siglingu um Bodensee. Síðasta ferð hafði verið 6 tímum áður.
Ferð okkar um Lindau lauk snarlega þegar himnarnir opnuðust og gusuðu hressilega yfir okkur fersku rigningarvatni.
Eftir þetta keyrðum við til Bregenz í Austurríki. Þar fórum við á Klausturkjallarann og borðuðum rosalega góðan mat. Einnig fengu sumir, sem ekki voru að keyra, smá bjórdreytil.
Daginn eftir keyrðum við áleiðis til Ernen. Á leiðinni er farið í gegnum Furka göngin. Í stað þess að keyra í gegnum þau eins og maður á að venjast var keyrt upp á lest sem flutti mann síðan í gegnum þau.

Skömmu síðar vorum við komin til Ernen
Til að sjá Alpana almennilega skelltum við okkur í kláfi upp á Eggishorn sem er tindur í tæplega 3000 metra hæð.
Útsýnið var auðvitað stórkostlegt þarna uppi
það kom sér líka vel að vera í fjallgöngugallanum, því þarna uppi var frost og snjór.
Mér voru því allir vegir færir þarna uppi.
Blómin í Ernen komu vel undan vetri eins og þessi mynd sínir
Daginn eftir stóð til að keyra í gegnum Ítalíu á leiðinni heim til München. Til þess að komast þangað þarf að fara í gegnum önnur lestargögn (svipuð og Forka göngin). En þar sem Ítalir eru þekktir fyrir leti og ómennsku, óstundvísi og hangs þá keyrði lestin þar í gegn bara á tveggja tíma fresti. Við nenntum því ekki að bíða eftir því og fórum sömu leið til baka með viðkomu í smálandinu Liechtenstein.
Þar var svo tekinn einn kaffibolli og nokkrar flöskur af víni landsins keyptar.
Finnbogi said,
ágúst 22, 2006 @ 12:04 pm
Það er mikil synd að ekki skuli hafa náðst mynd að þessum ljúffengu Schweinebraten mit Käsespätzle sem ég fékk með bjórnum þarna í Bregenz.
Finnbogi said,
ágúst 22, 2006 @ 4:36 pm
Ég er búinn að skella inn myndum hér.
gunnare said,
ágúst 24, 2006 @ 1:55 pm
Ferðamannakittið er nauðsyn. Svo er það líka elegant og smart. Sameinar fegurð og notagildi.
Brynjar said,
ágúst 25, 2006 @ 7:45 am
Ef ekki væri fyrir ferðamannakittið, þá væru engar ferðir farnar.
Þröstur said,
ágúst 29, 2006 @ 2:44 pm
Hvað gerði kellingin eiginlega á meðan þið voruð í lestinni??? Var það þá bara “Turn around as soon as possible!!!” eða reiknaði hún með þessum möguleika að bílnum væri skúbbað bara upp í lest?
Brynjar said,
ágúst 29, 2006 @ 2:48 pm
Rétt áður en kom að göngunum öskraði kellingin “Take the ferry!, Take the ferry!”
Við fórum strax að skima í kringum okkur eftir stóru skipi og vatni þarna uppi í Ölpunum en sáum svo loks lestina. Þar sem kellingin missti sambandið inni í göngunum þá þagði hún þunnu hljóði þar til við komum út, 15 km. síðar.