Lúðrasveitartónlist
Víða standa frændur okkar þjóðverjar framarlega, en þó hvergi eins framarlega og þegar kemur að flutningi lúðrasveitartónlistar.
Þessum sönnunargögnum náði Finnbogi á filmu í Enska garðinum (við kínverska turninn) um daginn. ATH. þetta myndband er 5mb og gæti því verið smá stund að hlaðast inn.
Þessi frábæra lúðrasveit samanstendur af eldri köllum (frá c.a. 70 ára og uppúr) sem sitja þarna og drekka spila allan liðlangan daginn. Það þarf auðvitað ekki að taka það að þeir eru allir í 2.-5. kynslóðar leðurbuxum sem eru girtar upp í háls. Þökk sé því hversu hátt buxurnar ná þá er einmitt mjög skemmtilegt að sjá þá haltra eftir nýjum bjór (hægt að sjá það á heila og hálfa tímanum allan daginn).
Finnbogi said,
ágúst 29, 2006 @ 9:54 am
Var ég búinn að senda þér stóra myndbandið með tenórhornsólóinu?
Brynjar said,
ágúst 29, 2006 @ 9:56 am
Nei, er það jafnvel enn betra en það sem hér er?
Þröstur said,
ágúst 29, 2006 @ 2:41 pm
Æ æ æ, ekki meira af þessum viðbjóði. Þetta er alveg nóg og miklu meira en það.
Brynjar said,
ágúst 29, 2006 @ 2:50 pm
Aldrei nóg! Aldrei nóg!