Paulaner - Oktoberfest Bier
Þar sem ekki eru nema rúmar tvær vikur í að Oktoberfest hefjist þá er tilvalið að skoða aðeins úrvalið af Oktoberfest bjórum.
Í dag verður fyrir valinu Paulaner Oktoberfest bjórinn. Hann kemur frá Paulaner brugghúsinu hér í borg. Paulaner hefur bruggað bjór frá því 1634. Í upphafi voru það munkar sem brugguðu til eigin neyslu (sem hefur væntanlega verið all nokkur) en í framhaldinu var farið að selja bjórinn til almúgans.
Paulaner er líka þekktur fyrir að koma sterkur inn á Starkbier hátíðinni á vorin í Paulaner kjallaranum í Nockherberg með Salvator bjórnum. Þá hátíð hef ég ekki enn upplifað, en ég mun gera henni skil þegar þar að kemur.
Án þess að ég hafi gert sérstaka könnun á því, þá virðist Paulaner vera eini Münchenar bjórinn sem hægt er að fá mjög víða fyrir utan Þýskaland (reyndar ekki svo víða að hann fáist á Íslandi), en ég veit að hann fæst víða í evrópu og í Bandaríkjunum. Því miður er það ekki alveg sami mjöður sem er fluttur út og er drukkinn innansveitar, en hann kemst nærri.
Bjór dagsins er eins og áður sagði Oktoberfest bjórinn. Hann er lagerbjór, 6.0% að styrkleika og er því nokkuð sterkari en hefðbundi lagerinn sem maður drekkur.
Því miður varð ég fyrir miklum vonbrigðum með bjórinn. Hann er eiginlega alveg bragðlaus. Kannski skemmir það fyrir að ég er bara með hálfan líter við hönd en ekki líterkrús, en þrátt fyrir það eru vonbrigðin mikil. Oftast fær maður ríkara malt- og humlabragð þegar bjórinn er sterkari, en í þetta skiptið fær maður ekkert nema ríkari ölvun. Það er ekki einu sinni neitt eftirbragð að ráði til að smjatta á í lokin. Það verður þó að teljast bjórnum til tekna að það er ekkert vont bragð heldur. Það er nú annað en hægt er að segja um margan Íslenskan bjórinn.
Þrátt fyrir þessi vonbrigði mun ég ekki hætta að drekka bjór, ég prófa bara næstu tegund.
Finnbogi said,
september 1, 2006 @ 11:09 am
Skóflubruggið fæst líka víða í Bandaríkjunum. Það var meira að segja hægt að fá skóflu á krana (þó ekki úr eikartunnu) á einni krá í hommahverfinu í Sívætlu.
Immerda said,
september 1, 2006 @ 11:55 am
Það er greinilegt að Ásta er á Íslandi og þú dottinn af alefli í “ölsmökkun”. Það var lagið. Ég held að þú verðir að drekka allnokkurt magn af viðkomandi bjór til þess að marktækt sé - einn, tveir hafa ekkert að segja. Nú bíður maður bara spenntur eftir næstu tegund.
Kveðja góð.
Immerda.
Brynjar said,
september 1, 2006 @ 1:50 pm
Já, auðvitað var þetta bara hugsunaleysi að vera bara með eina flösku. Réttast væri að drekka 3 lítra og setjast svo við skriftir í framhaldinu. Þá fyrst væri eitthvað að marka það sem maður segir.
Þröstur said,
september 5, 2006 @ 3:16 pm
Ljónabruggið fæst nú ansi víða, meira að segja á Íslandi. En annars eru þeir bæjarar ekki nógu góðir bissness menn. Auðvitað eiga þeir bara að hella sykri, maís og andoxunarefnum í bjórnum til að geta bruggað meira og flutt bjórinn út. Mér skilst á þeim Egilsmönnum að þetta hafi víst engin áhrif á gæði bjórsins