Hacker-Pschorr Oktoberfest Märzen

Bjór dagsin kemur að þessu sinni frá Hacker-Pschorr brugghúsinu hér í München.
Hacker-Pschorr var eitt sinn tvö aðskilin brugghús, Hacker og Pschorr. Árið 1972 sameinuðust þau í Hacker-Pschorr (gaman þegar úr verður alveg nýtt nafn þegar tvö fyrirtæki sameinast). Sögu Hackers brugghúsins má rekja allt aftur til 1417. Þarna er því nokkur reynsla sem ætti klárlega að skila sér beint í bjórinn.

Bjór dagsins er Oktoberfest bruggið frá Hacker-Pschorr. Þetta er dökkleitur lagerbjór, 5.8% að styrkleika.

hacker.jpg

Í þetta skiptið var ég ekki svikinn, hér er á ferðinni frábær bjór. Það er ríkt maltbragð af honum og minnir hann helst á Tékkneskan Böðvar, þó er meira karamellubragð af honum heldur en Böðvarnum. Bjórinn rennur ljúft niður og kemur strax upp löngun í annan bjór. Það eitt er mikið styrkleikamerki sem ekki allir bjórar hafa.
Það er ágætt að minnast á það að núna er ekki nema rétt rúm vika þangað til Oktoberfest hefst. Þar mun ég væntanlega kíkja ofan í nokkrar krúsir af þessu bjór. Það er örugglega ennþá meira gaman að drekka hann úr líterskrús heldur en venjulegu glasi.

oktoberfest_bild.jpg

Tveggja vikna bjórhátíð, það hentar mér ágætlega.

5 athugasemdir »

  1. Helga'Netta said,

    september 9, 2006 @ 10:03 pm

    Mér finnst Bjór vikunnar stórkostlegt og göfugt viðfangsefni hjá þér!!!!!!! Ég vildi svo sannarlega vera að fara að upplifa Októberfest með ykkur á Mjaðarvöllunum, en það verður að bíða betri tíma. Takk fyrir síðast og takk fyrir okkur. Sjáumst vonandi sem fyrst…..og góða skemmtun næstu vikurnar und trink ein fur mich!!

    Kv. Helga og Andrés

  2. Þröstur said,

    september 10, 2006 @ 12:49 pm

    Ætli þú verðir ekki svo þunnur eftir gærkveldið að þig langar örugglega ekkert í bjór næsta mánuðinn :)

  3. Finnbogi said,

    september 12, 2006 @ 11:22 am

    Ég get vottað að þrátt fyrir bjór dagsins var Brynjar í fínu drykkjuformi alla helgina, vottaði hvorki fyrir þynnku né bjórleiða. Enda í orlofi…

  4. Brynjar said,

    september 12, 2006 @ 11:24 am

    Enda ef einhverntímann reynir á bjórþolið, þá er það núna. Oktoberfest að hefjast á næstu dögum. Lifrin þarf að vera í toppformi!

  5. Sögur af Mjaðarvöllum » Hacker-Pschorr Sternweisse said,

    maí 16, 2007 @ 9:02 pm

    […] Bjór dagsins kemur að þessu sinni úr smiðju Hacker-Pschorr manna. Þetta er ekki fyrsta sinn sem bjór frá Hacker-Pschorr fer inn fyrir mínar varir, sjá Hacker-Pschorr Oktoberfest Märzen þar sem hægt er að lesa örstutta umfjöllun um brugghúsið. […]

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment